Úrval - 01.03.1970, Blaðsíða 91
POPPO
89
föður þeirra. Poppo var eitt hinna
þriggja, sem búa skyldu hjá föður
sínum og 19 ára gamalli stjúpmóð-
ur í tveggja herbergja íbúð á Front-
stræti, en sú gata er í verksmiðju-
hverfi fast við Brooklynbrúna, og
er þetta eitt ömurlegasta hverfið í
allri New Yorkborg. Það var því
engin furða, að Poppo kysi gjarn-
an að búa í rólegu íbúðinni okkar.
Dottie skildi vel hin skrýtnu vin-
áttubönd, sem tengzt höfðu á milli
þessa litla drengs og mín, miðaldra
eiginmanns hennar. Hún hvatti
jafnvel til þessara vináttu. Við höfð-
um misst son á barnsaldri. Við átt-
um dóttur, sem okkur þótti mjög
vænt um, og nú áttum við 6 ára
gamla dótturdóttur, en Dottie tek-
ur það enn sárt að ég skuli hafa
farið á mis við að eiga son.
Sumarið 1961 fórum við með
Poppo litla með okkur í sumarleyfi
til Skjóleyju, sem er baðstaður við
Löngueyju fyrir utan New York-
borg, og ætluðum við að dvelja þar
í viku hjá vinum okkar. Dottie og
Poppo eyddu löngum tíma í að
velja föt handa honum. Slík föt
hafði hann aldrei eignazt fyrr. Það
er ekki svo að skilja, að þau væru
mjög dýr, —- en þau voru ný.
Daginn fyrir brottferðardaginn
kom hann svo til allsherjar hreins-
unar, eins og um hafði verið talað.
Það er ekki hægt að lýsa þeirri
lykt, sem er af barni úr verstu fá-
tækrahverfum New Yorkborgar.
Það er ekki aðeins lykt venjulegra
óhreininda, heldur lykt sérstakra