Úrval - 01.09.1970, Side 16
14
ÚRVAL
bæti aðeins einu nýju efni við og
trufli þannig hið hárnákvæma
jafnvægi, til dæmis skordýraeitrinu
DDT.
Samfélagshópur frumstæðra
manna gat aðeins skaðað eða eyði-
lagt næsta nágrenni sitt. Þegar hóp-
urinn varð uppiskroppa með mat,
varð hann að flytja sig um set eða
deyja ella. En nútímasamfélag get-
ur eyðilagt allt það land, sem það
ræður yfir, og flutt inn matvæli og
stuðlað kannski þannig að eyðilegg-
ingu fjarlægari og fjarlægari landa
án þess að vita um það eða láta sig
það nokkru skipta. Maður tækni-
aldarinnar gleymir því, að þær sí-
vaxandi byrðir, sem hann leggur á
náttúruna, þvinganir hans gagnvart
henni, geta leitt af sér hefnd náttúr-
unnar sjálfrar.
Maðurinn ofbýður líklega náttúr-
unni einna mest með offjölgun sinni.
Læknavísindum nútímans hefur
tekizt að finna læknisráð við fjölda
sjúkdóma, að halda þeim í skefjum
eða draga stórlega úr þeim og jafn-
framt dauðsföllum, og þannig hafa
þau samtímis lagt grundvöllinn að
þeirri geysilegu offjölgun manna,
sem stefnir nú auðlindum og getu
náttúrunnar í beinan voða. Álitið
er, að mannkynið hafi verið um 5
milljónir fyrir 8000 árum. Árið 1850
var það orðið 1 billjón, 1930 var það
komið upp í 2 billjónir og núna er
það um 3% billjón. Álitið er, að það
geti verið orðið um 7 billjónir um
næstu aldamót. Sumir vísindamenn,
sem fást við þá vísindagrein, sem
áður er lýst, vara ákveðið við því,
að lífssviðið geti ekki fullnægt þörf-
um svo margra, t.d. Paul R. Ehrlich
við Stanfordháskólann. Commoner
álítur, að við núverandi aðstæður
geti um 6 til 8 billjónir manna lifað
hér á jörðinni, en svo muni ýmis
vandamál, er snerta mengun um-
hverfis og matvælaöflun, verða ó-
leysanleg, ef mannkyninu fjölgar
enn meira.
í vissum skilningi bera Band-
ríkin mikla ábyrð. í landi okk-
ar búa að vísu aðeins 5.7% alls
mannkyns, en samt neytir banda-
ríska þjóðin 40% af heimsfram-
leiðslu þeirri, sem grundvallast á
auðlindum náttúrunnar. Á 70 ára
langri ævi notar hver Bandaríkja-
maður að meðaltali 117 milljón iítra
af vatni, 94.500 lítra af bensíni, 9.000
pund af kjöti, 25.000 af mjólk og
rjóma, 8000 dollara virði af skóla-
byggingum, fatnað fyrir 6000 doll-
ara og húsgögn fyrir 7000 dollara.
Ehrlich hefur þetta að segja í þessu
sambandi: „Sérhvert barn í Banda-
ríkjunum er umhverfi sínu 50 sinn-
um meiri byrði en sérhvert barn í
Indlandi.“
VAKNAÐU,
TÆKNALDARMAÐUR
Menn álíta almennt, að fyrst
tæknin færði mönnunum þessi um-
hverfis- og mengunarvandamál,
hljóti hún einnig að geta leyst þau
fyrir hann. Anthony Wiener við
Hudsonstofnunina heldur því fram,
að slíkt sé alls ekki víst. Er við
leysum þessi vandamál, jafnóðum
og þau koma upp, komumst við
kannski jafnframt að því, að lausn-
irnar skapa ný vandamál.
Tökum sem dæmi 10 billjón doll-
ara áætlun ríkisstjórnarinnar um