Úrval - 01.12.1971, Síða 23
MIRAGE
FRANSKA UNDRAÞOTAN
21
sem þjakað hafa hina amerísku F-
111, en framleiðsla og gerð hennar
kostaði margfalt hærri upphæð.
„Avions Marcel Dassault“ er enn
aðeins meiriháttar fyrirtæki, sem
byggt er upp kringum snilligáfu
eins manns, en frumleiki þessa
snillings, og hugmyndaauðgi hans
hefur samt orðið verksmiðjunni úti
um heimsfrægð. Og Dassault ætlar
sér ekki að hvílast á lárviðarkransi.
„Falcon" hans er þegar kominn í
samkeppni á bandarískum við-
skiptamarkaði sem hagkvæm við-
Nýjasta franska þotan, Miraqe G,
hefur hreyfanlega vængi, sem hœgt
er aö stilla frá 20 gráöurn í 70 gráöur.
skiptaflugvél. „Falcon“ er þota með
sætum fyrir 12 farþega. Hún getur
lengst flogið 3200 km í einum áfanga
og ferðahraðinn er ekki undir 885
km á klukkustund. 1972 sendir hann
frá sér „Mercure", fagra farþega-
þotu sem nota á á stuttum vega-
lengdum. Sú mun taka 185 farþega,
og er ætlazt til að henni verði ekki
Þegar nú flugvélaiðnaður Frakk-
lands skýtur slíkum iðnaði í öðr
um Evrópulöndum svo langt aftur
fyrir sig, þá er það ekki hvað sízt
að þakka starfsorku, starfsemi Dass-
flogið lengra en 300 til 1600 km.
aults, svo og framsýni hans. Hjá
„Avions Marcel Dassault“ horfa
menn inn í framtíðina og eru að-
eins bjartsýnir. Fjárhagsleg um-
setning þess fyrirtækis er nú um
það bil einn og hálfur milljarður
franka.
Þótt Bandaríkin séu ekki reiknuð
með, er búizt við að vestrænar þjóð-
ir noti á þessum áratug 4000 nýjar
orrustuþotur til að bæta upp gaml-
ar þotur, og úr sér gengnar, og Mar-
cel Dassault ætlar sér að hirða
bróðurpartinn af þessum framtíðar-
viðskiptum, kannski með algerlega
nýrri kynslóð Mirage-þota.
Vinur Dassault hefur lýst honum
og hans ævilanga starfi við flugvél-
ar sem „röð svimandi áhættuupp-
hæða á rúllettuborði framtíðarinn-
ar“. Dassault er sjálfur stoltur af
að hafa spilað svo djarft og unnið
svo stórt. Hann hefur hins vegar
aldrei treyst heppni. Þeir menn sem
voga sér að vanmeta þrumufleyg
hans, Mirage-þotuna, þeir hafa not
fyrir heppni, þegar þeir siá þær
glampa efst á hvelfingunni.