Úrval - 01.12.1971, Blaðsíða 48

Úrval - 01.12.1971, Blaðsíða 48
46 ÚRVAL sem er geysilega vel og listilega út- skorin á hinn flóknasta hátt. Svepp- ir, mygla og ormar höfðu lagt undir sig innviði panelborðanna, svo að þeim hætti til að molna. Hefði átt að gera eftirlíkingu þessarar viðar- klæðningar með sams konar út- skurði, hefði slíkt verk tekið heilan her tréskui'ðarmanna marga áratugi. Til allrar hamingju tókst efnaverk- smiðju einni að finna upp heppilega viðgerðaraðferð. Viðurinn var með- höndlaður með sýru, sprautaður með plastefni, og undir panelborð- inu var sett bak úr krossvið. Nákvæmur gaumur er gefinn að sérhverju minnsta smáatriði í hinni sífelldu viðleitni til þess að koma öllu í nákvæmlega sama horf og það var í áður. Síðustu 15 árin hafa silkivefnaðarverksmiðjur í Lyons leyst af hendi geysilegt starf við framleiðslu á dýrmætu húsgagna- áklæði á húsgögnin í höllinni. Starfs- menn vefnaðarverksmiðjanna hafa lagt sig alla fram til þess að verkið megi verða sem bezt af hendi leyst. Venjulega eru aðeins notuð hin beztu kínversku silkiefni, og ofið er á gamla trévefstóla. Ekki er unnt að vefa nema nokkra þumlunga á dag með slíkum aðferðum. Það tók 4 konur tvö ár að sauma í einn þriggja feryarda hluta af leiksviðs- tjaldinu í Versölum, þótt þær ynnu fullan vinnudag. Knipl og knipl- ingaskreyting í hinum gamla stíl krefst þess stundum, að blandað sé saman átta mismunandi blæbrigðum af þræði til þess að fá fram ná- kvæmlega réttan lit. Van der Kemp gerðist jafnvel svo djarfur að láta hefja viðgerð á öll- um klukkum í höllinni, þar á meðal hinni fornu sólkerfisklukku, sem sýnir ekki aðeins tímann heldur einnig stöðu reikistjarnanna gagn- vart stöðu jarðar og tungls. Það vantaði 32 nauðsynlega hluti í þessa flóknu klukku. Úrsmiðurinn Pierre Bécard, sem hættur var störfum, gerði hluti þessa og leysti þar af hendi stórkostlegt afrek. Hann varð svo gagntekinn af starfi sínu, að hann hefur gefið vinnu sína og vinn- ur kauplaust að þessu viðfangsefni. Víðs vegar í hinum geysistóra kastaia, Versalahöllinni, eru menn að störfum. Og Van der Kemp við- urkennir, að starfi þessu muni al- drei verða fullkomlega lokið. En hann hefur samt veitt milljónum manna tækifæri til þess að gægjast bak við hið gyllta forhengi sögunn- ar og líta Versali, eins og þeir voru, þegar dýrð þeirra bar vitni um glæsileika og vald Bourbon-ættar- innar. Hræsnari er maður, sem skrifar bók, þar sem hann dásamar trú- leysið, og biður þess svo iheitt, að bún muni seljast vel. Auglýsing í glugga hárkollubúðar: Hárkollur, sem rnunu gera yðar eigið hár grænt af öfund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.