Úrval - 01.12.1971, Qupperneq 73
DJARFASTI DÝRATEMJARI HEIMS
71
mont, þegar fólk les það, þá er það misskilningur. í Jjessu svari
felsl hin áralanga reynsla hans þar sem hann hefur lært að sam-
eina aga og skilning, þannig að dýrin ekki einvörðungu gera
það sem hann vill að þau geri, heldur fái þau sjálf fullnægju af
að framkvæma óskir hans. Hann stjórnar þeim með framkomu
sinni, blæbrigðum raddarinnar fremur en með hótunum, og það
er greinilegt að þau njóta návistar hans eins mikið og hann nýt-
ur návistar þeirra.
Gehel-Williams þjálfunarkerfið gerir ekki ráð fyrir refsing-
um nema í mjög litilfjörlegum mæli: Það er hlindgata í hans
augum. Hann beitir þess í stað verðlaunum - og svo ótakmark-
aðri þolinmæði. Það fyrsta og erfiðasta í þjálfun ungs tígrisdýrs
er einfaldlega að fá skepnuna til að setjast niður þar sem þjálf-
arinn vill að hún sitji. Til að fá taugaveildaða og lirædda skepn-
una til að gera þetta, þá otar Gebel-Williams staf sínum mjúk-
lega i dýrið jafnframt því sem liann skipar því lágum rómi að
taka sér sæti. Þegar tígrisdýrið á endanum sezt þar sem það á
að sitja, réttir Gebel-Williams því á sama stafnum og áður dangl-
aði i það, stóran hita af safaríku kjöti í verðlaun.
Þegar tígrinn lærir svo að sameina verðlaunin og hlýðnina
verður næsta auðvelt að fá hann til að hlýða liverju sem er.
Gott dæmi um áhrifamátt þessarar aðferðar er hið undarlega
samstarf sem hann hefur komið á milli Bengal, Kongó og Nellie.
í frumskógum Indlands orsaka tígrisdýr kringum 20% af dauðs-
föllum allra fíla, og fílar eru mjög varkárir gagnvart þessum
köttum. Gehel-Williams fékk indverska fílinn sinn, Nellie, til
að gera algjöra undantekningu hvað Bengal snerti með þvi að
láta þau sofa í sömu vistarveru vistarveru sem hann sjálfur
svaf raunar í um nokkurra mánaða skeið.
En það er hættulegt starf að vinna með tígrisdýrum, jafnvel
fyrir heimsfræg'an dýratemjara. Hættan er ekki aðallega sú að
þau rífi hann kannski sundur, lim fyrir lim. Smáskeinur eða
rispur geta rétt eins haft alvarlegar afleiðingar, þótt þær komi
af algjörri slysni. Tígrisdýr bursta nefnilega aldrei tennur sín-
ar eða hreinsa á sér klærnar, og liangi kannski tægja af liráu