Úrval - 01.12.1971, Side 91
WALT DISNEY
89
keypti hann búgarðinn Crane Farm
nálægt bænum Marceline í Mis-
sourifylki, um 100 mílum fyrir norð-
austan Kansas City.
Walt átti fjögur systkin, Herbert,
sem var þá 17 ára, Raymond, sem
var 15, Roy, sem var 12, og Ruth,
sem var 2 ára. Hinn mikli aldurs-
munur á Walt og bræðrum hans
hafði það í för með sér, að Walt
átti enga leikfélaga á bóndabænum.
Móðir hans hafði áður verið kennslu-
kona, og hún kenndi honum heima,
þangað til hann var orðinn 7 ára.
Walt litli tók því brátt að leita
félagsskapar dýranna á bænum.
Hann hvarf oft burt og dvaldi hjá
dýrunum tímunum saman. Hann
fann upp leiki til þess að leika við
dýrin og leikreglur, sem farið skyldi
eftir. Og það var eins og þessir leik-
félagar hans skyldu þetta og færu
eftir því. Grísinn, hann Magri, hrein
af ánægju, þegar hann var í felu-
ieik með Walt litla. Og fjölskyldu-
hundurinn, hann Pési, reyndist vera
mesti snillingur í reiptogi. Og vagn-
hesturinn, hann Kalli gamli, fann
sjálfur upp leik fyrir þá. Hvenær
sem Walt klöngraðist á bak honum,
þaut hann af stað á harðaspretti i
áttina til aldingarðsins á búgarðin-
um. Dýrin á Cranebúgarðinum komu
í stað leikfanganna og vinanna, sem
Walt Disney átti aldrei, og búgarð-
urinn sjálfur var fyrsti töfraheimur
hans.
Elías safnaði rigningavatni í tjarg-
aðar tunnur eins og flestir bændur.
Dag einn árið 1908 tók Walt eftir
því, að tjaran í einni af tunnunum
var að bráðna í heitu sólskininu. I
svínastíunni, sem var aðeins nokkr-
um fetum frá tunnunni, rumdi
gamla gyltan af vellíðan. Walt hafði
oft riðið á henni út í svínatjörnina.
Hún virtist alveg fyrirtaks fyrir ■
sæta, og Walt greip því pensil, dýfði
honum í mjúka tjöruna og hófst
handa. Hann notaði hlöðuvegginn
sem málarastriga.
Faðir hans tók í lurginn á honum
fyrir þessar tiltektir. Hann dró hann
inn í hlöðu og flengdi hann. Walt
minntist lengi þeirrar flengingar.
Walt komst að því eins og margir
aðrir listamenn, að ættingjar hans
mátu listagáfu hans ekki mikils. En
einn ættingja hans sá þó, að það
birtist snilligáfa í mynd þessari. Það
var hún Margaret frænka, sem var
þá í heimsókn á búgarðinum. Hún
keypti litla 5 centa teikniblokk og
litblýantakassa handa honum. Og
brátt var drengurinn farinn að
teikna allt það, sem fyrir augun
bar í húsagarðinum og á hlaðinu.
Gamli héraðslæknirinn, hann dr.
Leslie Sherwood, hvatti hann líka.
Hann var orðinn áttræður. Walt
fékk oft að fara með honum í
sjúkravitjanir. Hann sat við hliðina
á honum í gamla vagninum hans,
sem dreginn var af Ruppert, grað-
hesti læknisins. í hvert skipti sem
læknirinn fór í vitjun, beið dreng-
urinn utandyra á meðan og gætti
vagnsins og hestsins. Þá notaði hann
tækifærið til þess að teikna eitt-
hvað, sem var þar á næstu grösum,
hláturfugl uppi í tré eða hund, sem
lá í leti í forsælunni.
Dag einn sagði læknirinn við
hann: „Viltu sýna mér það, sem þú
hefur verið að teikna?“
Walt varð innilega ánægður, þeg-