Úrval - 01.12.1971, Side 102

Úrval - 01.12.1971, Side 102
100 URVAL garðinum sínum. Þarna kom það! Flugóður með Mortimer mús sem aðalstjörnu, Það héldu honum engin bönd, og hann byrjaði að lesa I.illy fyrir kvikmyndasöguna. En hún bar strax fram mótmæli. „Mortimer er hrœðilegt nafn á mús!“ sagði hún. „Jæja þá,“ sagði Walt, „en hvað segirðu um að kalla músastrákinn Mikka? Mikki mús! Já, þetta hljóm- ar eitthvað svo vinalega.“ Strax og Walt kom aftur til Holly- wood, fékk hann Ub Iwerks það verkefni að koma hugmynd þessari á pappír, þ.e. að teikna frummynd- irnar. Þetta var sex vikna vinna, og yfir henni hvíldi mikil leynd. Ub læsti sig inni í skrifstofu sinni. Stundum teiknaði hann 700 myndir á dag. Walt breytti bílskúrnum sín- um í vinnustofu, og þar gerðu starfs- stúlkur blekafrit af teikningum Ubs, áður en þær yrðu kvikmyndaðar. Mikki varð sífellt lífmeiri með degi hverjum. Höfuð hans var aðeins einn hringur, sem auðvelt var að teikna. Og eyru hans voru einnig hringir, hvernig sem hann sneri sér. Líkaminn var perulagaður, þ.e. breikkaði eftir því sem neðar dró. Rófan smámjókkaði, og fæturnir voru óskaplega mjóir, en á þeim voru risastórir skór. Það var auð- veldara og ódýrara að teikna hanzka með fjórum fingrum en fimm,. og því varð Mikki að láta sér lynda að vanta einn fingur á hvora hönd. Á eftir teiknimyndinni „Flugóð- ur“ fylgdi myndin „Kúreki á fleygi- ferð“. Og brátt var Ub byrjaður á þeirri þriðju, sem bar heitið „Villi skipstjóri“. Á meðan skauzt Walt aftur til New York með sýnishorna- kvikmyndaspólur. Þar varð hann ekki var við hinn minnsta áhuga. Það vildi enginn líta við þessari nýju teiknimyndastjörnu hans. „Þetta var eitt erfiðasta augna- blikið í lífi Walts,“ sagði Ub. Iwerks, skömmu áður en hann dó í fyrra- sumar. „Hann hafði hætt öllu, en honum tókst ekki að vekja áhuga neins í New York á þessari nýju teiknimyndapersónu sinni, þótt hann dveldi þar í heilan mánuð. Þetta virtist í rauninni vera endir- inn á frama hans.“ Walt kom að lokum ráð í hug, örvæntingarfull ráð. Fyrir tæpu ári, eða í október 1927, hafði fyrsta tal- myndin verið sýnd. Það var „Jazz- söngvarinn“. Síðan hafði verið kom- ið fyrir hljómtækjum í rúmum 100 kvikmyndahúsum. Og áhorfenda- og áheyrendafjöldinn hafði síðan sí- vaxið og var nú kominn upp í 95 milljónir á viku, þ.e. hafði tvöfald- azt. „Við setjum hljóð og tal í Villa skipstjóra,“ sagði Disney við sjálfan sig. Þetta hafði aldrei verið gert áður. Það gekk vel að setja tal í kvik- myndir, þegar lifandi leikarar töl- uðu orðin. En hvernig var hægt að samræma hreyfingar teiknimynda- persónanna orðum, sem voru töluð, og hljóðum, sem voru framkölluð löngu eftir að lokið hafði verið við teiknimyndirnar? Þeir Roy og Walt gerðu tilraun með 35 fet af kvik- mynd, sem tók aðeins 30 sekúndur að sýna. Þeir söfnuðu saman alls konar óhljóðatækjum, sem notuð voru á gamlárskvöld, kúabjölium,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.