Úrval - 01.12.1971, Síða 121
WALT DISNEY
119
að teikningunum, þegar sannleikur-
inn um heilsu hans kom loks í ljós.
Hann hafði haft stöðugar kvalir í
baki undanfarið, og hélt hann, að
þar væri um að ræða þrýsting á
taugar í hryggjarlið eða á milli
þeirra. Skurðlæknarnir komust að
raun um, að Disney var með ill-
kynjað æxli. Hann var geysilegur
reykingamaður og reykti að jafnaði
fjóra pakka af vindlingum á dag.
Þann 7. nóvember námu læknar
burt vinstra lunga hans. Honum
leiddist aðgerðarleysið alveg óskap-
lega, því að slíku var hann ekki
vanur, svo að það voru ekki liðnar
tvær vikur frá uppskurðinum, þeg-
ar hann reyndi að taka til starfa af
sama kappi og áður. En það var
sem orkuuppspretta hans hefði
skyndilega þornað upp. Neistinn
hafði slokknað. Þann 30. nóvember
varð hann að fara aftur í sjúkrahús
og var þá alveg fársjúkur. Og klukk-
an 9.15 að morgni til þann 15. des-
ember hætti hið eirðarlausa hjarta
hans að slá.
Og um fimm leytið sama daginn,
einmitt þegar starfsfólkið í fyrir-
tækjum hans var að fara heim úr
vinnu, lifði það augnablik, sem það
mun aldrei gleyma. Inn á torgið við
Ráðhúsið í Disneylandi þrammaði
Disneylandhljómsveitin, sem taldi
16 meðlimi og raðaði sér upp undir
pipartrjánum í hvítu einkennisbún-
ingunum sínum og með fjaður-
skreyttu hattana í sama stíl og ríkti
meðal lúðrasveita á dögum Sousa,
konung marsanna. Barið var lágt á
trumbur. Síðan kvað við lúðraþyt-
ur, og fáninn á háu fánastönginni
var dreginn niður ofur hægt. Síðan
lyfti hljómsveitarstjórinn, Vesey
Walker ofursti, sem var 73 ára, tón-
sprota sínum að nýju. Og svo bár-
ust tónar lags úr „Gosa“ út yfir
torgið á þessum milda vetrardegi.
Það var eins og ljóð þetta væri
sjálfur kjarninn í lífi Walts Disneys:
Þegar þú horfir á stjörnurnar og
óskar þér einhvers,
þá skiptir það engu máli, hver
þú ert.
Þér mun veitast hvað eina, sem
hjarta þitt þráir.
Árið 1955 hafði Walt borizt bréf
frá konu einni í Tennesseefylki. Hún
sagði, að hún og fjölskylda hennar
fylgdust alltaf með vikulegum sjón-
varpsþætti Disneys, en í einum
hinna nýrri þátta hafði Walt ein-
mitt verið að lýsa fyrirætlunum
sínum um stofnun og starfrækslu
Disneylands. Því var líkt farið með
11 ára gamlan son hennar og mill-
jónir annarra barna. Hann lét í
ljósi þá von, að einhvern tíma gæf-
ist honum tækifæri til þess að heim-
sækja Disneyland. En það átti ekki
að opna Disneyland fyrr en eftir
nokkra mánuði, og drengurinn átti
ekki svo langan tíma til stefnu.
Hann þjáðist af blóðkrabba. Móðir
hans spurði því Disney í bréfi sínu,
hvort nokkur möguleiki væri á því,
að draumur drengsins hennar gæti
rætzt.
Walt gekk tafarlaust frá öllum
undirbúningi að ferðalagi drengsins
og heimsókn í Disneyland. Svo kom
fjölskyldan laugardagsmorgun einn,
mörgum vikum áður en hin opin-
berlega opnunarathöfn skyldi fara
fram. Aðalstræti og miðtorgið í
Disneylandi hafði ekki enn verið