Goðasteinn - 01.03.1968, Blaðsíða 5
Einar H. Einarsson:
Sjö þættir
um fugla
FORSPJALL
I greinarkorni þessu verða lauslega tekin til meðferðar sjö at-
riði varðandi fugla. Ekki er ætlazt til, að á þetta sé litið sem vís-
indalegar staðreyndir, heldur sem rabb alþýðumanns um fugla og
sitthvað þeim viðkomandi handa alþýðufólki, sem eins og höf-
undur hefur yndi af því að skoða og athuga hina margbreytilegu
náttúru lands okkar. Nokkrir kaflanna eru byggðir upp úr glefs-
um úr dagbókarbrotum mínum yfir athuganir á fuglalífi í Mýrdal,
að mestu frá því um 1950 til þessa dags. Vera kann að þeir þyki
allþurrir aflestrar, enda ætlaðir þeim, er áhuga hafa á fræðilegum
athugunum á fuglalífi íslands.
Eitt er öllum þessum sjö köflum sameiginlegt og það er það,
að eingöngu er miðað við Mýrdalinn. Hendi það að út fyrir hann
sé seilzt, er þess jafnframt getið um leið. Mér dylst ekki, að efni
þessara sjö kafla er það viðamikið, að erfitt er að koma því fyr-
ir í stuttri tímaritsgrein. Því bið ég ykkur, lesendur góðir, að
virða til betri vegar, þó stíll og frásöguháttur sé um of þurr og
stuttorður.
Godasteinn
3