Goðasteinn - 01.03.1968, Blaðsíða 82
Þetta er merkilegt dæmi um tryggð ættar við nafn. Annað dæmi
skal hér nefnt þessari ætt til hróss: Niðjar Hannesar Crumbeck búa
enn í Hlíð í beinan karllegg. Munu fá dæmi þess á íslandi, að ætt
hafi setið á sama garði í 350 ár, jafnvel lengur, því vel má kona
Höskulds í Hlíð hafa verið af gamalli Hlíðarætt. Hér er þá þetta
bændatal í Hlíð: 1. Höskuldur Hannesson. 2. Ólafur Höskuldsson.
3. Árni Ólafsson (f. 1688), giftist Vigdísi Jónsdóttur bónda á Raufar-
felli, Brandssonar. 4. Ólafur Árnason (f. um 1725), giftist Vilborgu
Vigfúsdóttur bónda í Hólakoti, Oddssonar. 5. Sigurður Ólafsson
(f. um 1766), giftist Kristínu Jónsdóttur frá Hrútafellskoti. 6. Jón
Sigurðsson (f. 1795), giftist Guðríði Jónsdóttur bónda á Steinum,
Björnssonar bónda á Eystri-Sólheimum. Jón sá var hálfbróðir Jóns
ríka í Drangshlíð. 7. Sigurður Jónsson (f. 1846, d. 1904) giftist Guð-
laugu Jónsdóttur frá Melhól í Meðallandi. 8. Sigurgeir Sigurðsson,
(f. 1882, d. 1934), giftist Sigurlínu Jónsdóttur frá Steinum. 9.Sigur-
jón og Sigurbergur Sigurgeirssynir, sem nú búa í Hlíð.
Þessi samantekt um Hlíðarætt er gerð með leiðsögn Sigfúsar M. Johnsen, fyrrv.
bæjarfógeta í Vestmannaeyjum. - Þ. T.
GRAFSKRIFT
I biblíu Jóns Þorsteinssonar í Norður-Vík í Mýrdal (útg. 1747) eru
skráðar nokkrar grafskriftir, m.a. þessi um föður Elsu Dórótheu,,
konu Sveins Alexanderssonar umboðsmanns:
Hér geymist duftið af þeim í Drottni sáluhjálplega sofnaða,
Berent Legh Pultz, sem fæddist í Norvegi, í Þrándheimi, 1743,
deyði á Islandi, í Vopnafirði, 1786. Var assistent og skipasmiður
við þá kónglegu, octröyeruðu, íslenzku höndlun í 16 ár. Hann var
sannur Guðsdýrkari, faislaus mannvin, nákvæmur ektamaki, rétt-
skikkaður faðir og þolgóður í þjáningum. Jesú Christi, allra frels-
ari, talaði máli hans hjá Guði, til sálarinnar ævarandi gleði. Ack
lesari! Lærðu að deyja, meðan þú enn þá lifir, svo þú getir not-
ið sama talsmanns að á dauðans stundu.
80
Goðasteinn