Goðasteinn - 01.03.1968, Blaðsíða 40
Kristján Eldjárn:
S]'ö menn í skálagólfi
Skráð cftir Þórarni Kr. Eldjárn, hreppstjóra á Tjörn í Svarfaðardal (27. jan. 1962).
Móðursystir mín, Þórunn Hjörlcifsdóttir, prests að Skinnastað og
síðar Tjörn og Völlum, Guttormssonar, var merkiskona á alla lund,
góð og grandvör. Hún var yfirsetukona, eins og verið hafði móðir
hcnnar, og þótti áræðin og heilladrjúg í ljósmóðurstarfi. Maður
Þórunnar var Arngrímur Gíslason málari, og var hún seinni kona
hans. Þau bjuggu við lítil efni í Gullbringu í Svarfaðardal, þegar
Arngrímur dó, árið 1887, frá fjórum ungum börnum þeirra. Þór-
unn brá þá búi í Gullbringu og fluttist til foreldra sinna að Tjörn
með sum börnin, en önnur voru tekin til fósturs af öðru vina- og
kunningjafólki. Meðai annars fór Angantýr sonur hennar að Urð-
um til Sigurhjartar bónda Jóhannessonar, sem scinna varð tengda-
faðir minn. Naut Angantýr þar góðs ástríkis, og var hægt um vik
fyrir móður hans að heimsækja hann. Kom hún að Urðum, þegar
hentugleikar leyfðu, en föst regla var það, að hún færi þangað í
nokkurra daga kynnisför á hverjum vetri. I þær ferðir hafði hún með
sér yngstu dóttur sína, Nönnu, eftir að hún komst það á legg, að
slíkt þætti gerlegt.
Einu sinni sem oftar var Þórunn í heimsókn á Urðum að vetr-
arlagi og hafði Nönnu með sér. Sváfu þær í stofu í frambæ, og
fékk Þórunn einnig að hafa Angantý þar hjá sér. Þannig hagaði til
í stofunni, að gluggi var á framþili, en við bakvegg andspænis
38
Goðasteinn