Goðasteinn - 01.03.1968, Blaðsíða 31
Stefán Jónsson í Hlíð:
Kynlegur kvistur
á gömlum
og góðum stofni
í ungdæmi mínu heyrði ég talað um mann, sem í flestum störfum
og háttum var svo gcrólíkur samtíðarmönnum sínum, að almennt
umtal vakti. Gcngu því af honum ýmsar sögur manna á milli. Flest-
ar eru þær orpnar gleymsku, enda 85 ár liðin frá láti hans.
Ekki hef ég nú annað handbært af sögnum um þennan sér-
kennilega mann, en það, sem geymt er í minni mínu, en tel þó rétt
að færa þær í letur, því þær lýsa manninum allgreinilega.
Maður þessi var Stefán Jónsson, sem flest búskaparár sín bjó að
Hvammi í Lóni.
Faðir Stefáns var séra Jón Einarsson, sem var sonur séra Ein-
ars Árnasonar prests á Sauðanesi og konu hans, Margrétar Lárus-
dóttur Scheving klausturhaldara. Kona séra Jóns og móðir Stefáns
var Margrét Guðmundsdóttir litara, Sæmundssonar, Þórðarsonar
prests á Staðastað, Jónssonar biskups á Hólum. Þau giftust 1809.
Séra Jón fluttist að Hálsi við Hamarsfjörð 1809 og fékk það
kall, sem hann þjónaði til 1812. Þar fæddist Stefán. Á Hálsi bún-
Goðasteum
29