Goðasteinn - 01.03.1968, Blaðsíða 30
árið 1468, liðlega sjötugur, og þá voru prentsmiðjur komnar á fót
í nokkrum þýzkum og ítölskum borgum.
Prentlistin breiddist ótrúlega fljótt út. Til Italíu náði hún 1465,
til Sviss 1468, Frakklands 1470, Hollands 1473, Spánar 1474, Eng-
lands 1477, Danmerkur 1482 og Svíþjóðar 1483. Hingað til lands
náði prentlistin ótrúiega snemma miðað við allar aðstæður. Var
það eingöngu að þakka framtaki og dugnaði Jóns biskups Arason-
ar. Talið er að hann hafi fengið prentsmiðju sína frá Þýzkalandi
og flutt hana til Hóla 1530. Með prentsmiðjunni fékk Jón hingað
til lands sænskan prentara, er hét Jón Matthíasson og síðar varð
prestur hér á landi.
Fátt er kunnugt um bækur þær, sem Jón biskup lét prenta. Hafa
það að öllum líkindum verið messubækur, tíðabækur og fleira af
skyldu tagi. Ef til vill hefur bænakverið Brevarium Holensis verið
fyrsta bók, sem prentuð var hér á landi. Ekkert eintak er til af þess-
ari latnesku bænabók og raunar ekkert eftir af henni, nema e.t.v.
tvö blöð, scm varðveitt eru í sænsku konungsbókhlöðunni í Stokk-
hólmi. Þá er og talið að Jón biskup hafi látið þýða og gefið út guð-
spjöllin fjögur og ef til vill eitthvað fleira. En ekkert er til, sem
vitnað gæti um þessa starfsemi hins ágæta Hólabiskups. Honum
gafst heldur ekki langur tími til að sinna bókmenntum og prentun
á Hólum, því að fljótlega dró á loft ófriðarblikur siðskiptanna.
Frumkvöðlar hins nýja siðar hér á landi vildu gjarna koma guðs
orði á móðurmálinu á framfæri við landa sína. En ekki gátu þeir
leitað til Jóns biskups á Hólum um prentun eins og allt var í
pottinn búið. Þess vegna var það, að Oddur Gottskálksson lét
prenta þýðingu sína á Nýja testamentinu í Hróarskeldu árið 1540.
Sá maður, sem raunverulega ruddi prentlistinni braut hér á
landi var Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup 1571-1627. Hann lét
endurbæta hina gömlu prentsmiðju Jóns Arasonar og hefja að
nýju prentun á Hólum. Gerðist hann hinn mesti afreksmaður á
þessum vettvangi sem öðrum, og er talið, að hann hafi alls látið
prenta á Hólum um 90 bækur. Meðal fyrstu bókanna var Biblían,
sem kom út árið 1584. Var þetta fyrsta útgáfa heilagrar ritningar
á íslenzku máli, og markaði þessi viðburður tímamót í íslenzkri
bókargerð svo sem á mörgum öðrum sviðum.
28
Goðasteinn