Goðasteinn - 01.03.1968, Blaðsíða 68
um stíl útskurðar, grafið jurtastönglum, sem rísa og vindast upp frá
botni með blaðskrauti. Efst er bekkur með laufaskurði, neðan við
tinstútinn. 1 heild er hornið ágætur fulltrúi fyrir drykkjarhorn
seinni alda og samboðið snillingnum, Jóni í Skaftafelli.
Heimildir: Manntöi, „Lítið um ætt konu minnar, Ljótunnar Jónsdóttur", eftir
Sigurð Þorsteinsson í Svínafelli. Sigurður Björnsson á Kvískerjum skrifar mér í
bréfi 26. 3. 1968, að Einar Jónsson í Skaftafelli hafi oft haft kaffi í drykkjar-
horninu, er hann fór í göngur. „Einar átti annað horn, útflúrlaust, sem hann
hafði lýsi í, er hann fór að gjöra til kola.“
Barnagæla
Sr. Lárus Thorarensen frá Stórholti í Dalasýslu dó í hafi á leið
heim til Islands árið 1912, vart 35 ára að aldri. Á vígsludegi sr.
Bjarna Jónssonar, síðar vígslubiskups, 26. júní 1910, átti sr. Lárus
samleið fneð dr. Sigurði Nordal á götu í Reykjavík. Hafði þá
sr. Lárus yfir vísu, er fóstra hans hafði kveðið við hann á barns-
aldri. Má þar vart á milli sjá, hvort þyngra er á metum heims-
lystin eða varúð gegn henni:
Brennivín!
ó, brennivín!
ó, brennivín!
Hversu sæt
og furðu ágæt
er fuktin þín.
En eftir á kemur angur og pín,
eg þá hlýt að skammast mín
og úti liggja eins og svín,
eins og svín.
Skráð eftir dr. Sigurði Nordal.
66
Goðasteinn