Goðasteinn - 01.03.1968, Blaðsíða 60
lands á erlendum ráðstefnum. Einnig sat hann í stjórn þess félags-
skapar öðru hverju. Síðustu árin starfaði hann mikið á vegum
Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins að eftirliti með heilbrigðis-
málum víða um lönd. Gerði hann víðreist þeirra erinda og var ný-
kominn úr einum slíkum leiðangri, er hann féll frá. Hann bjó
læknisstofu sína á Hellu hinum ágætustu tækjum og setti þar upp
eins konar rannsóknarstofu. Kom það sér einkar vel, því að sífellt
fékkst hann við sjálfstæðar rannsóknir tiltekinna sjúkdóma, t.d.
heymæði, og varð vel ágengt. Vöktu þessi störf hans mikla og
verðskuldaða athygli og fékk hann til þeirra styrk úr Vísindasjóði
um árabil.
Ólafur Björnsson kvæntist árið 1947 eftirlifandi konu sinni,
Katrínu Elíasdóttur frá Reykjavík. Þau eignuðust fjögur mannvæn-
leg börn, sem enn eru á æskualdri. Engum getum þarf þar að leiða,
hvílíkur ógnarharmur er kveðinn að fjölskyldu Ólafs, er skyndilega
var svo miklu svipt. Þeir sem álengdar standa, skynja aðeins brot
þess harms, en finnst þó harla þungbær.
Megi góður guð leggja líkn með þraut, ástvinum hans til trausts
og huggunar.
Ólafur Björnsson læknir er horfinn oss yfir móðuna miklu. Við
minnumst hans með s'öknuði sem hins mikla, glaðværa og fórnfúsa
starfsmanns. Við minnumst hans með söknuði sem hins trausta
samferðamanns og góða félaga, sem alltaf var reiðubúinn til að
m.iðla öðrum og láta gott af sér leiða. Við þökkum störf hans,
hlýju, vinsemd og drengskap og árnum honum alls velfarnaðar á
nýjum slóðum æðri tilveru.
Minningin um Ólaf Björnsson mun lifa með okkur umvafin
birtu og heiðríkju.
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjálfr hit sama;
en orðstírr
deyr aldrigi,
hveims sér góðan getr.
58
Goðastemn