Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Síða 12
15
FORNMINJAR
Á þeim dögum glampaði sólin á skínandi þökum reisu-
legra bygginga af ýmsum gerðum og dansaði geisladans á
gljáfægðum herklæðum riddaraliðsins, sem hleypti héðan
frá virkishliðunum ýmist í norðvesturátt eða suðausturátt
til að vernda kaupmannalestirnar, sem komu frá Antíokkíu
eða fóru til Antíokkíu til og frá Indlandsbyggðum fram
með Efratfljóti færandi dýrmætan verzlunarvarning milli
heimshluta.
En þessari dýrð lauk með herhlaupi eyðimerkursonarins,
Shapur I Persakeisara, sem þeysti með ógrynni herskárra
liðsmanna sinna utan af sandinum árið 256 að borgarmúr-
unum, braut þá niður með vígvélum sínum, felldi eða her-
tók rómverska setuliðið og gjöreyddi virkisborgina.
Þannig bjó hann rústirnar þeim búningi, sem þær höfðu,
þegar sandurinn tók leifarnar til geymslu og góðrar varð-
veizlu.
Fyrir stuttu (á árunum 1928—1937) vék svo sandurinn fyr-
ir atbeina fornleifafræðinga frá hrundum múrum og brotn-
um þökum, og margvíslegar fornminjar komu í ljós, sem
segja sína sögu af lífinu innan voldugu virkismúranna með-
an Dura-Europos var og hét. Eitt af því athyglisverðasta úr
þeirri sögu, a. m. k. fyrir frumkristnisöguna, sem þarna hefir
fundist, er veggmyndin, sem hér gefur að líta. Ef þú tekur
Nýja-testamentið þitt þér í hönd og flettir upp á öðrum
kafla Markúsar-guðspjalls versunum 1—13 eða Matt. 9, 1—7
eða Lúk. 5, 17—26, sérð þú, að myndin hér snertir söguna.
Til hægri er lami maðurinn rúmliggjandi og Jesús blessar
yfir hann. Til vinstri hefir hann lagt rúmið á herðar sér
(sbr. hebreska er lesin frá hægri til vinstri) og er orðinn
heill. Þessi mynd er af fræðimönnum talin ein af elztu
biblíusögumyndum, sem til eru. Myndin af Jesú er elzta
Jesúmynd, sem hægt er að tímasetja, gjörð fyrir árið 256.
Hvernig stendur á því að hana er þarna að finna? Hver ætli
hafi gjört hana? Hvers konar bygging var það, sem hún
prýddi?