Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Page 31
KIRKJUSAGA
34
Mynd séra Hallgrims Péturs-
sonar i myndarúðu Akureyr-
arkirkju, (og er myndin þar
i litum). Myndina mdlaði
Kristinn Jóhannsson skóla-
stjóri í Olafsfirði. Sýnir hún
þjdningu séra Hallgrims á
táknrœnan hátt, — og mmn-
ir á passiusálma hans.
og Hólar í Hjaltadal. Gröf var til forna eitt mesta höfuð-
ból í Skagafirði. Þar var bænhús í kaþólskum sið, en af-
tekið með konungsbréfi 1765. Húsið var þó endurbyggt,
og síðar fært í sína upprunalegu mynd eftir því sem hægt
var. Er það að stofni til elzta guðshús hérlendis og vígt 1953
af þáverandi biskupi, Sigurgeir Sigurðssyni.
Faðir Hallgríms, Pétur Guðmundsson, átti heima í Gröf.
Þriggja feðga er getið þar um og eftir aldamótin 1600, Pét-
urs, Hallgríms bróður hans og Guðmundar Hallgrímssonar
föður þeirra. Sá Guðmundur var bróðir séra Þorláks, föður
Guðbrandar biskups á Hólum. Hallgrímur var því náfrændi
biskupsins, Móðir Hallgríms var Sólveig Jónsdóttir.
Vitað er, að Guðbrandur biskup kvaddi frænda sinn, Pét-
ur Guðmundsson, til Hóla og gerði hann þar að klukkna-
og kirkjuvaktara. A Hólum kemur Hallgrímur fyrst fram á
sjónarsviðið sem ungur drengur.
Erfikenningin og munnmælin hallast helzt að því, að
Hallgrímur sé fæddur í Gröf. Saga er til um það, að eitt