Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Page 53
PRESTSSTARFIÐ
56
heimatekna. En út í þessar breytingar verður ekki frekar
farið, þar sem þetta viðtal við þig, vinur minn, séra Gísli,
á fyrst og fremst að snúast um fyrstu starfsár mín.
Ég vil svo að lokum lýsa yfir því, að allt frá upphafi starfs-
ferils míns í Þingeyrarklaustursprestakalli var fólkið þar allt
gott við mig og fram yfir mína verðleika og þó enn elsku-
legra eftir því sem lengur leið. Hélst sú þróun allt til þeirrar
stundar, er ég með ríkum þakkarhuga og djúpum söknuði
kvaddi þetta yndislega hérað og ágæta fólk.
Ég vil svo að lokum biðja þess að blessun Drottins megi
hvíla yfir Húnaþingi um ókomin ár, yfir prófasti og prest-
um héraðsins og yfir hverjum einstökum söfnuði þess.
Hún var læknuð
Margrét Wangari er 19 ára skólastúlka í Karuri — menntaskólanum í
Banama-Hill rétt hjá höfuðborginni Nairobi í Kenya. Hún fór til kristinna
búða í Njoro og þekktur predikari lét biðja þar fyrir henni. Á meðan á
bæninni stóð, varð Margrét fyrir vitrun. Hún sá í sýn ömmu sína sjúka og
annan mann til, sem hún þekkti.
Þegar Margrét snéri við frá Njoro til Banana-Hill, fór hún rakleiðis til
ömmu sinnar, sem hafði þjáðst af gigt í 10 ár og gekk ekki nema við hækj-
ur. Margrét fullvissaði sig um, að amma hennar trúði á bata. Hún kallaði
saman börn ömmu sinnar og eftir 10 mínútna bæn hinna viðstöddu
fór gamla konan að skjálfa, en stuttu síðar stóð hún upp, gekk um og dans-
aði. Hún var læknuð. Þetta var fyrsta kraftaverk Margrétar af mörgum.
Forum, World features (Þýtt Mbl.).