Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Síða 64
67
MINNING
gift Tómasi Heiðar Sveinssyni viðskiptafræðing Þverbrekku
2 Reykjavík. Björn lögregluþjónn kvæntur Kristínu Böge-
skov, Hlíðarvegi 21, Kópavogi og séra Ágúst sóknarprestur
kvæntur Guðrúnu Ásgeirsdóttur, Mælifelli Skagafirði.
Fóstursonur þeirra er Haraldur Sigurðsson leikfimiskenn-
ari kvæntur Sigríði Matthíasdóttur, Byggðavegi 91, Akur-
eyri.
Séra Sigurður hætti störfum eftir að hafa veikst af sjúk-
dómi, sem hafði í för með sér miklar þjáningar og þrautir.
Hann fékk lausn frá prófastsstörfum 1964 og prestsstörfum
árið eftir. Vígslubiskupsembættinu sagði hann lausu frá 1.
ágúst 1969.
í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera, stendur
skrifað í spádómsbók Jesaja. í þolinmæði og trausti bar séra
Sigurður sjúkdóminn. Hann var karlmenni, æðrulaus og
gat jafnvel gert að gamni sínu, þó að helfjötrar héldu hon-
um föstum á sjúkrabeði. í sjúkdómsbaráttunni átti hann
hina hljóðu reisn, og þoldi það, sem hann varð að ganga í
gegn um með hugprýði og trúmennsku. Um burtför okkar
af þessum heimi segir postulinn, „. . . að vér eigum að ganga
inn í guðsríki gegnum margar þrengingar.“ (Post. 14, 22). —
Þær þrengingar gekk séra Sigurður gegnum, áfram til upp-
risunnar, sem hann sjálfur hafði boðað í hinum lifandi
bjartsýna kristindómi, sem hann varði ævi sinni til að kunn-
gjöra. María sýndi það ekki sízt er mest á reyndi, hvílík
stoð hún var manni sínum. Guð blessi minningu þeirra.
Pétur Sigurgeirsson.