Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 80
83
FÉLAGSLÍF
blaðalaust, telur fundurinn gott fyrir þá, sem hafa mikla
andans gáfu og áhuga og mælsku, en að nauðsynlegt væri, að
prestsefnin fengju æfingu í þessu á prestaskólanum. Að þeir
prédiki blaðalaust álítur fundurinn ekkert aðalatriði“.
3. Altarisgöngumálið. Séra Hjörleifur Einarsson hélt fyr-
irlestur um þetta mál. Tók hann fram hið sorglega ástand,
er víða ætti sér stað í þeim efnum. Tala altarisgestanna í
söfnununum færi fækkandi, og það væru sorgleg tímanna
tákn. í niðurlagi fyrirlestursins tók hann fram þau ráð, er
honum hafði hugkvæmst til þess að ráða bót á þessu: Að
prestar ræddu altarisgöngumálið við kirkjur sínar eftir
messu, á málfundum, þair sem væru staddir 2, helzt 3 prest-
ar; að prestar stofnuðu unglingafélög með sérlegu tilliti til
altarisgangna. Um altarisgöngumálið töluðu mjög margir af
miklu fjöri og lífi. En umræðurnar lýstu því, að fundar-
menn töldu orsakirnar til hinnar hnignandi altarisgöngu
aðallega þessar fjórar: a) trúardeyfð, b) Kalvinismus, c)
strangar kröfur til altarisgestanna og d) þá skoðun sumra
manna, að altarisgangan sé ekki nauðsynlegt skilyrði til sálu-
hjálpar. — Þá er hér var komið, var dagur að kveldi kominn,
og var fundi því frestað til næsta dags.
Daginn eftir, 9. júní, kl. 9 f. m., var fundur aftur settur:
Fundarstjóri bar fram uppástungur séra Hjörleifs, og
öskaði að menn ræddu þær. Prófasturinn séra Hjörleifur
skýrði tillögur sínar í altarisgöngumálinu. — Eftir allmikl-
ar umræður var í einu hljóði samþykkt svohljóðandi álykt-
un:
„Fundurinn álýtur heppilegt, að prestar ræði á málfund-
um, eftir messu, um altarisgöngu og nytsemi hennar í söfn-
uðunum, sérstaklega þegar prestar eru til altaris, og styðji
í þessu efni hver annan“.
4. Þá bar fundarstjóri fram tillögu séra Hjörleifs urn
stofnun unglingafélaga með sérstöku tilliti til altarisgöngu.
Séra Pálmi Þóroddsson tók fyrstur til máls og mælti með
unglingafélögum yfir hcifuð, en efaðist um, að unglingafé-