Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Page 144
147
FRÉTTIR
í þessu sambandi er ástæða til að benda á, að kirkjuvinir
í hverri sókn gangi fram fyrir skjöldu og bindist samtökum
um að vinna kirkju sinni allt það gagn er þeir mega. —
Kirkjan er oss kristnum móðir — segir í sálminum. Það má
ekki gleymast á öld félagshyggju, að kirkjan er sú stofnun,
sem veitt hefir ómælda blessun yfir land og þjóð um alda-
raðir. Þá stofnun þarf að styðja og efla enn sem fyrr, til
þess að hún vinni áfram landi og lýð til heilla. Það er vin-
átta, sem Kristur ætlast til af okkur, livar í sveit og sókn
sem við erum.
P. S.
Þá varö Norðurland veitandi
Skáldið frá Fagraskógi, Davíð Stefánsson, hefði orðið átt-
ræður á þessu ári (21. jan.). Hann var fæddur í Fagraskógi
21. janúar 1895 og dó sunnudagsmorguninn 1. mars 1964.
Um Davíð látinn sagði Þór-
Myndastytta Davíðs Stefánssonar í
Fagraskógi, afhjúpuð við hátiðlega
athöfn 18. júlí 1971. Ljósm. Eðvarð
Sigurgeirsson.
arinn Björnsson skólameist-
ari: „A meðan hans naut
við, var Norðurland veit-
andi í andlegu búi þjóðar-
innar.“
Sannleik þeirra orða
reyndi hver íslendingur,
sem heyrði Davíð lesa upp
Ijóð sín á hátíðlegum
stundum í lífi þjóðarinn-
ar. — En skáldið lifir, og
veitir þannig áfram af sín-
urn andans auði þegnum
þjóðar sinnar, sem elska og
þakka ljóðin hans.