Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Page 158
161
FRÉTTIR
inn veitti ekkjunni athygli, sem lagði smáaurinn í fjárhirzl-
una, fyrr en Jesús benti á, að hlutur hennar var mestur og
beztur (Markús 12). Gagnvart hjónabandinu var það hans
kenning, að bæði konan og karlmaðurinn hefðu þá skyldu
að varðveita helgi þess (Mark. 10).
Hreyfingar, sem í dag beita sér fyrir því, að konur nái að
fullu þeim réttindum, sem þeim ber í lífi og starfi, ættu að
minnast þess, sem Kristur og boðskapur hans hefir lagt á
vogarskálina. Það er eigi lítið, sem við eigum honum að
þakka í þeim efnum eins og öðru, er varðar heill mannsins.
P. S.
Ljóskross á Lögmannshlíðarkirkju
Lögmannshlíðarkirkju barst nýlega fögur gjöf. Þann 7.
október sl. færðu börn, tengdabörn og seinni eiginkona Sig-
urðar Árna Sigurðssonar (t'. 7. okt. 1874, d. 7. sept. 1947),
kirkjunni að gjöf fagran ljóskross, sem nú er á turni kirkj-
unnar. Gjöfina gáfu þau í tilefni af aldarafmæli Árna. Hann
átti lengi heima í Þyrnum í Glerárþorpi.
Gjöfin er einnig gefin til minningar um fyrri konu Árna,
Sigríði Árnadóttur, og Þórkötlu og Jakob Guðmundsson
frá Hjarðarholti.
Kveikt var á ljósakrossinum í fyrsta sinn við guðsþjónustu
í kirkjunni sunnudaginn 13. október. Voru þá margir gef-
endanna viðstaddir.