Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1906, Side 20

Skírnir - 01.04.1906, Side 20
116 Japan. Skirnir. tíma. Þá er og önnur auðsæ ástæða, sem mælti mjög með lýðskólunum: þéttbýlið. Börnin gátu auðveldlega gengið í skólana heiman að og svo mörg sótt hvern skóla (175 að meðaltali) að kenslan hlaut að verða langódýrust og fyrirhafnarminst á þann hátt. Væri líkt ástatt hér, myndi engin sveit vera barnaskólalaus, jafnvel þó enginn lög hefðu skyldað til þess. Þá er og þess að gæta, að skólarnir eru Japönum til- tölulega ódýrir. Húsin eru þeim miklu ódýrari en oss, upphitun mjög litilvægt atriði og kennararnir kauplágir. Væru barnaskólar á Islandi tiltölulega jafnmargir og í Japan, ættu þeir að vera tæpl. 50. Einn kennara- skóli kemur á næstum tífalt fleiri ibúa en Islendingar eru alls. Einn latínuskóli kemur á 5—6 miljónir manna og ekki fleiri en 9 nemendur ættu árlega að ganga á latínu- skóla af Islendingum til þess að sama hlutfall væri liér og í Japan. Mannfjöldinn og þéttbýlið gerir kraftaverk. Auðsjá- anlegt er það, að þungbært verður oss Islendingum að kosta alla nauðsynlega skóla í samanburði við Japan. Gieta má nærri að vöntun á skólabókum heflr verið í fyrstu mjög tilfinnanleg, enda er og enn ekki betur úr henni bætt en svo að í sumum vísindagreinum æðri skól- anna fer kenslan fram á Evrópumálum, ensku, þýzku eða frakknesku. Einstakir menn hafa nokkuð ráðið bót á þessu með því að leggja fram fé til þess að kosta útgáfu skólabóka, en til þessa er mér ekki kunnugt um, að ríkissjóður hafl lagt fé til þess, enda hlýtur útgáfa skólabóka í jafnfjöl- mennu landi að geta borið sig ágætlega. öðru máli er að skifta með oss. Fjöldinn allur er eftirtektaverður í mentamálum Japana og verður fæst talið hér. Trúarbrögð eru hvergi kend í skólum þeirra og við háskólann er engin guðfræðisdeild. Hvergi veit eg þess dæmi við aðra fullkomna háskóla, en trúað gæti eg því, að þeir tímar kæmu að allar siðaðar þjóðir færu að dæmi Japana í þessu. I stað trúarbragðanna er siðfræði kend í lýðskól-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.