Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1906, Side 24

Skírnir - 01.04.1906, Side 24
120 .Tapau. Skirniiv inn þegar minst vonum varir að Japanir liafi hætt við sitt erfiða og torskilda mál og tekið upp ensku i stað þess! Það má heita mesta furða hve létt kenslu- og menta- málin hvíla á ríkissjóði Japana. Arið 1896 gengu til þeirra úr ríkissjóði 1,460,000 yen og er það ekki meira en sem svarar 6 aururn á hvern mann i landinu. Arið 1900 vörðum vér Íslendingar 99,633 kr. til kenslumála, en það svarar til 1,10 kr. eða með öðrum orðum næst- um 20 sinnum meira hlutfallslega en Japanar. Hvað myndi verða, ef öllu því væri bætt við sem þurfa þykir! Auðvitanlega orsakast þessi mismunur að miklu leyti af því, að skólarnir hvíla að mestu leyti á héruðun- um, en ekki ríkissjóði. b.) Atvinnuvegir. Því fer fjarri að atvinnuvegir Jap- ana hafi yfirleitt fylgst með framförunum í herbúnaði, mentamálum og löggjöf. Sennilega verður þess ekki langt að bíða að þeim verði á ýmsan hátt umturnað eftir nýj- ustu tízku, en til þessa hafa önnur mál setið í fyrirrúini. Eins og fyr er getið, lifir meira en helmingur allra landsmanna af jarðrækt og akuryrkju. Ræktunin er að vísu ágæt yfirleitt, en ræktunaraðferðir eigi að síður mjög gamaldags og áhöld öll. Að mestu leyti er jarðvegurinn pældur og undirbúinn undir sáningu með skóflum og handafli, því fátt er um hesta, en þar sem plógar eru notaðir eru þeir af æfagamalli gerð og lítt hentugir. Sagt er að tilraunir með betri áhöld og jarðrækt eftir nýjustu tízku gefi góða von um mikinn árangur, en h vonigt heflr verulega rutt sér til i*úms til þessa. Aðallega var það hugmynd stjórnarinnar landbúnaði til eflingar að ríkissjóður stæði straum af öllum nauðsyn- Íegum rannsóknum og vísindalegu starfi er að landbúnaði lyti og útbreiddi meðal bænda þekkingu á liverri nýjurig óðara en vissa var fengin fyrir nytsemi hennar. Svo var ætlast til að sveitafélögin og einstakir menn kæmu því í framkvæmd á eigin kostnað sem arðvænlegt vært talið og horfa þætti til framfara. Þetta heflr þó gengið skrykkjótt, einkum að því leyti að bændur hafa lítt feng-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.