Skírnir - 01.04.1906, Qupperneq 35
Sldrnir.
Japan.
131
mann. Ef miðað er við gjaldþolið, þá bera Japanar senni-
lega þyngri byrðar en vér. Af eiginlegum sköttum og
tollum koma í Japan 7—8 kr., en á Islandi 6—7 kr.
Af þvi sem hér er sagt má sjá, að ríkissjóðsgjöld
Japana hafa lengst af verið mjög lítil og eru en stórum
lægri en tiðkast í Norðurálfulöndunum — þrátt fyrir allar
framfarirnar.
Þegar endurbótaöldin hófst og keisari tók við völd-
unum voru ríkissjóðstekjunnar bæði litlar og óvissar.
Tekjurnar hrukku að eins til þess að borga ljxo
af nauðsynlegum útgjöldum og fyrir 9/10 voru gefnir
út óinnleysanlegir seðlar. Það var því undinn að því
bráður bugur að auka tekjur ríkissjóðs og koma þeim
í fast horf. Sama verkefnið lá og fyrir oss. þegar fjár-
hagur íslands og Danmerkur var aðskilinn og vér urðum
að bæta úr flestum nauðsynjum vorum sjalflr. Fróðlegt
er það að sjá liversu Japanar hafa aukið tekjur ríkissjóðs-
ins og hver er helzti munur á þeirra aðferð og vorri.
Yfirleitt er munurinn lítill. Framan af var að vísu
ábúðarskatturinn miklu þýðingarmeiri tekjugrein í Japan
en hér, enda er hann ennþá miklu hærri, en annars
varð vín- og tóbakstollur fljótlega með beztu tekjugreinum
þar eins og hér, en kaffltollur er þar enginn, því kaffl er
víst lítið eða ekki notað þar. Nokkur atriði eru sett hér
til samanburðar. A hvern mann í landinu komu hér um bil:
Á íslandi (1900): í Japan (1903):
Ábúðar (og lausafjárskattur) . 0,50 kr. Ábúðarsk. 1,90 kr.
Tekjuskattur................0,18 » Tekjusk. . 0,16 »
Vínfangagjald................. . 1,42 » Vínf.t.. . . 2,80 »
(Kaffi og) sykurtollur......2,70 » Sykurtoll. 0,16 »
Tóbakstollur................1,23 » Tbt.(1901). 0,70 »
Tekjur af fasteignum landssjóðs 0,21 » Fast.(1896). 0,71 »
I Japanjiefir ríkið einkaverzlun með alt tóbak, en eigi
að síður eru tekjurnar af því engan veginn svo miklar
sem ætla mætti. ^Útflutningsgjöld af innlendum varningi
eru nú engin í Japan nú orðið, en hér eru þau ein af
helztu tekjugreinum landssjóðs. Aftur eru ýmsir skattar í
9*