Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1906, Page 55

Skírnir - 01.04.1906, Page 55
Skirnir. Grróðrarsaga hraunanna á íslandi. 151 I. Gróðrarþróun i hraunum. Hraunin verða til á þann hátt, að glóandi hraun- straumur rennur úr gígnum og fióir yfir landið umhverfis. Þá kólnar hraunið og storknar, og er lögunin á yfirborði hraunsins mest undir því komin, hvernig og hve fljótt það storknar. Eftir lögun yfirborðsins greina menn á Islandi milli tvenns konar hrauna, er nefnd eru apalhraun og helluhraun. Apalhraunin líta út sem óskipulegar urðaröldur, en helluhraunin eru miklu sléttari og i þeim eru víða á allstórum spildum sléttar klappir eins og nafnið hendir á, en á milli óskipulegar dældir og geilar. Eru helluhraunin miklu gróðursælli en apalhraunin, meðfram af þeirri ástæðu, að vatnið á örðugra með að síga gegn um þau. Nýrunnið hraun er með öllu eyðimörk og enginn gróður byrjar fyr en yfírborðið er storknað og kalt. Er hraunið þá mjög svo óvistlegur bústaður fyrir plöntur, því að þar er alls enginn jarðvegur. Háplöntum er því með •öllu ómögulegt að nema þar land að svo stöddu. En bót er það í máli, þótt hraunið sé jarðvegslaust, að yfirborð steinanna er hrufótt. Er það alsett skörpúm broddum, en á milli þeirra eru smáholur og skorur. Stormarnir á Is- landi þyrla venjulega upp ryki, staðnæmist það miklu fremur í hinu hrufótta yfirborði hraunklettanna en á slétt- um blágrýtisklettum. Um síðir kemur og jarðvegur í hraunin; verður það með ýmsu móti, en tíðast er, að plöntugróðurinn sjálfur gerir jarðveginn og lágplönturnar greiða götu háplantnanna. Skal nú farið um það nokkr- um orðum. Fyrstu landnemar hraunanna verða að vera þannig gerðir, að þeir geti lifað á beru berginu, af því að enginn jarðvegur er þar fyrir. Ýrasar lágplöntur eru þannig gerðar, svo sem þörungar (algœ), fléttur eða skófir (lichenes) og sumar mosategundir. Þörungar eru þó fremur sjald- gæfir í hraunum og látum vér því nægja að nefna þá. Fléttur og mosar eru alstaðar í klettum, en venjulegast ■eru flétturnar þó frumbyggjar þar.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.