Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1906, Side 57

Skírnir - 01.04.1906, Side 57
Skírnir. Gróðrarsaga hraunanna á íslandi. 153 þær inn í hraunið? Um bert og nýstorknað hraun er auðvitað engin umferð, og svo mætti að orði kveða, að þar kæmi að eins fuglinn fijúgandi; þó er mjög svo ólík- legt, að fuglar flytji frumbyggjana inn í hraunið, en það er eflaust vindurinn. Stormarnir þyrla upp jarðryki, sópa fræi og grói af plöntum, er vaxa umhverfis hraunið, og þeyta öllu saman yfir hraunflákana. Sérstaklega ber þess að gæta, að gró lágplantnanna eru svo lítil og létt, að ekki þarf hvassan vind til að feykja þeim í hraunið. Gró þeirra plantna, er geta búið á bergi, dafna og verða að fullorðnum plöntum, en gró eða fræ þeirra plantna, er þurfa jarðveg, deyja auðvitað á klettinum. Af þeim plönt- um, sem vindurinn flytur í nýstorknað liraun, dafna því að eins fléttur, mosar og ölgur, en allar háplöntur deyja, því að hraunið er jarðvegslaust. Þá höfum vér að nokkru lýst fléttunum, hversu þær eru fallnar til landnáms, og getið um, hvernig þær flytjast í hraunið; og skal nú drepið á gróðrarsöguna. 1. gróðrarstig. Fléttur og mosar á víð og dreif. A fyrsta gróðrarstiginu er hraunið tilsýndar. eins og það væri alveg nakið, en þegar komið er i sjálft hraunið, verðum vér þess fljótt varir, að marglitar smáskorpur eru á stangli hingað og þangað um nibburnar. Skorpur þess- ar eru fyrstu landnemarnir og teljast allar til fléttnanna. Auk þeirra vaxa þar og örfáar mosategundir, en þær flnn- ast að eins í örsmáum holum á fleti hraunsteinanna. Meðal hinna fyrstu mosategunda er grámosinn, er síðar nær mjög mikilli útbreiðslu í hraununum; en á þessu stigi er að eins að sjá einstaka smátór milli hraunbáranna. Niðri í hraungjótunum flnnast og nokkrar mosategundir, og tel- jast til skuggamosa, það er að segja mosategunda, sem ekki þrífast í skarpri birtu. Krakatindshraun í Hekluöræfum er ljósasta dæmi þessa gróðrarstigs af hraunum þeim, er eg hefi séð. Það hraun brann 1878. Er hraunið var 23 ára gamalt eða 1901 rannsakaði eg nokkurn hluta þess og fann að öllu samtöldu 16 tegundír, 12 mosategundir,

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.