Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1906, Síða 61

Skírnir - 01.04.1906, Síða 61
Skírnir. Gróðrarsaga hraunanna á íslandi. 157 eflaust verið skógi vaxin í Iandnámstíð, þó þess sé ekki beinlínis getið í sögunum, að því er mér er kunnugt. Þó má sjá af Grettlu. að birki hefir vaxið í Eldborgarhrauni á dögum Grettis. í ferðabók Eggerts Ólafssonar er getið um kjarrskóg í Eldborgarhrauni og Búðahrauni; en eigi verður með vissu séð, hvort kjarrskógur sá hefir verið til muna meiri en nú á dögum. Skóginn ber að skoða sem endatakmark að því er snertir gróðrarþróun á stórum svæðum í hraununum, því að öðrum plöntufélögum veitir mjög svo örðugt samkepni við skóginn. Rætur trjáa og runna liggja svo djúpt í jörðu, að aðrar plöntur geta öldungis ekki kept við skóginn að því er næringarefni jarðvegsins snertir, og eigi skaðar það skóginn hið minsta, þótt skógarjarðvegurinn sé alvaxinn lyngi eða grasi, því að þessar plöntur taka næringarefni úr hinum efstu lögum jarðvegarins. Annað mál er það, að þéttur undirgróður í skógi getur verið skaðlegur fyrir kímplöntur bjarkarinnar og fyrir ungt birki yfirleitt. Þá gnæfir skógurinn og liátt yfir önnur plöntufélög og er því miklu betur settur að því er sólarbirtu snertir, en án sólarljóss- ins geta grænar plöntur ekki lifað. Það er því augljóst að skógurinn er einvaldur um langan aldur þar, sem hann einu sinni er kominn, ef loftslag breytist ekki honum tii skaða og ef engin óhöpp vilja til. En óhöpp teljum vér, skoðað frá sjónarmiði skógarins, skógarhögg, beit og yfirleitt allar árásir, er skógurinn verður fyrir af öðrum eða öðru en keppinautunum. B. Jurtastóð, graslendi. Þar sem nægilegt vatn er og hagkvæmt skjól kemur sérstakur gróður, er vér köllum jurtastóð; í því plöntu- félagi eru blómjurtir (þ. e. jurtir með stórum litfögrum blómum) og burknar yfirgnæfandi, en auk þeirra vaxa þar ýmsar grastegundir. Á endanum mun oftast svo fara, að blómjurtunum fækkar meir og meir, en grastegundum fjölgar að því skapi, og að lokunum breytist jurtastóðið í graslendi. Meðan jurtastóðið er upp á sitt hið bezta, eru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.