Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1906, Page 89

Skírnir - 01.04.1906, Page 89
Skírnir. Erlend tíðindi. 185 skrásetning kirkjuskrúða og messuáhalda hélt áfram og hlauzt af manns bani í smábæ nyrzt á Frakklandi: lögreglumenn brugðu fyrir sig marghleypum. Það varð að umtalsefni á þingi. Stjórnin vildi ekki kannast við, að sér hefði neitt á orðið, og krafðist trún- aðartrausts-atkvæðis af þinginu. Það afsógðu klerkavinir og íhalds- menn, og harðsnúnustu framfaramenn voru ekki á því lieldur; kváðu stjórnina hafa átt að taka fyrir róstur þessar miklu áður með vægðarlausurn skörungskap. Það fór svo, að ekki urðu nema 234 til að samsinna stjórninni, en 267 í móti. Þeir ftouvier og sessunaut- ar báðust þegar lausnar. Sá lieitir Sarrien, er Falliéres forseti bað fyrir að koma saman nýju ráðaneyti. Honum tókst það vel. Þar eru Clemenceau og Bourgeois mestir skörungar aðrir. Clemenceau er meðal frjálslyndustu stjórnmálamanna á Frakklandi, befir verið á þingi lengst af frá því 1870 og miklu ráðið að jafnaði. Bourgeois hefir verið ráðgjafi áður oftar en einu sinni, stórnýtur maður og friðarfrömuður mikill. Þeir Sarrien eru kallaðir ákveðnari frelsis- vinir en Rouvier var og lians félagar. Sarrien er roskinn mað- ur, á sjötugsaldri; hefir verið lengi á þingi, gætinn maður, en mjög frjálslyndur. Rouvier var ráðuueytisforseti rúmt ár. Tók við af Combes £ fyrra vetur. Hann kom á skilnaði ríkis og kirkju, fekk á miklu réttarbót lögtekna nokkura fyrir árslokin síðustu. Hinni nýju stjórn farnast vel. Hún tók skörulega í streng í uppþoti því, er varð út úr námuslysinu mikla í Courriéres (10. marz) og þó góðvildarlega í þeirra garð, er þar létu óspaklega og kendu slysið aðsjálni og skeytingarleysi auðvaldshöfðingja þeirra, er tiámurnar áttu. Hún hélt og velli á Marokkomálsfundinum, er Yilhjálmur var frumkvöðull að beint í því skyni að skáka á Frakka og vini þeirra Breta. Loks var hún allvel sigursæl í þingkosning- um í vor í maímán. Frökkum þótti páfi ganga í fyrra á sáttmála þann, er staðið hafði meira en heila öld og gert hafði Napoleon mikli (1801) um hlutdeild ríkisvaldsins í kirkjustjórn páfa á Frakklandi. Sú hlut- deild var meiri en gerist í öðrum kaþólskum löndum. Napóleon var ráðríkur. Þar í móti kom það, að kennilýðnum var launað úr ríkissjóði. Til þess fóru 40 milj. franka á ári. Grunt var nú á góðu orðið áður milli páfa og stjórnarinnar í París, einkum fyrir það, að stjórnin tók fræðslu barna og ungmenna af klaustralýð öllum, körlum og konum. Nú varð ráðríki páfa til að herða á því, að farið var feti lengra og fullur skilnaður gerður með kirkjn

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.