Vísir - 17.06.1944, Blaðsíða 57
VlSIR
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARBL AÐ
57
Frá byggingu Sogsstöðvarinnar. Járnbinding í aðalvatnspípu.
Sogsstöðin. Steypumót lögð að aðalvatnspípunni inn undir
túrbínuna.
Almenna byggingafélagið h.f.
Verkfræðin er ungt starí' hér
á landi. Nær allir verld'ræðing-
ar íslenzkir, er til landsins
komu á fyrsta fjórðungi þess-
arar aldar, réðust til starfs við
opinberar framkvæmdir rílvis
og bæja. Eigi eru nema fá ár
síðan að verkfræðingar tóku að
starfa á eigin hönd eða að
standa fyrir framkvæmdum
öðru vísi en sem starfsmenn
hins opinbera.
I nágrannalöndunum er þessu
öðruvísi farið. Þar starfa flest-
ir verkfræðingar við einkafyrir-
tæki sin eða annara, en einstak-
lingar og hið opinbera leitar til
þeirra um lausn verkefna og
framkvæmdir. Það er alkunna,
að stærstu verkfræðingafyrir-
tæki í Danmörku hafa t. d. reist
mannvirki víða um heim, með-
al annars hér á landi.
Eins og áður getur hafa flest-
ir verkfræðingar til - skamms
tíma ráðizt í þjónustu hins op-
inbera. En í seinni tíð hafa
nokkrir verkfræðingar stofnað
til hygginga- og mannvirkja-
fyrirtækja. Eitt fremsta fyrir-
tækið í þeirri grein er Almenna
hyggingafélagið h.f., sem stofn-
að var 1 (i. janúar 1941.
Þetta fyrirtæki hel'ir þegar
reist l'jölda stórhýsa og tekið í
útboði mikil mannvirki. Það
hcfir og haft með höndum all-
mikil.störf fyrir setuliðin og nú
nýlega hafið vinnu við gatna-
gerð í Reykjavík.
Þótt saga fyrirtækisins sé
ekki orðin löng, tæplega hálft
fjórða ár, hefir rekstur þess
þegar vakið talsverða athvgli,
og ]>ykir mjög myndarlega af
stað farið. Meðal hel/.tu hygg-
inga, sem félagið hefir annazt,
eru vélsmiðju- og skrifstofu-
bygging hlutafélagsins Hamars
við Tryggvagötu, stórhýsið
Halnarhvoll milli Tryggvagötu
Og Skúlagötu, bifreiðabygging
H.f. Ræsis við Skúlagötu og
mjólkurstöð Mjólkursamsöl-
unnar við Suðurlandsbraut.
Þegar stækka þurfti Sogs-
stöðina fyrir Reykjavíkurbæ,
var verkið boðið út, og varð Al-
menna byggingafélagið lægst-
bjóðandi og hlaut verkið. Þetta
var í marz 1943, og hófst vinna
þegar, er fært þótti, í maí sama
ár. Vinnan sóttist greiðlega, og
var verkinu lokið snemma í
desember og tekið út af hált'u
Sogsvirkjunar í febrúar þ. á.
Var þá allt tilbúið undir véla-
samstæðuna, sem komin var lrá
Ameríku. Austur við Ljósafoss
voru 70—80 manns í vinnu,
þegar flest var. En ýmislegt var
þó búið í haginn fyrir verkin
annarsstaðar.
Almenna byggingafélagið h.f.
hafði frá öndverðu gert sér það
ljóst, að stór verkefni væri því
aðeins hægt að leysa, að nægur
og góður vélakostur væri fyrir
hendi og verkum öllum fyrir
komið á þann hátt, að verka-
skipting nýttist scm bezt.
Félaginu liefir þegar tekizt,
þrátt fyrir erfiðleika yfirstand-
andi tíma, að afla sér nokkurra
vinnuvéla og gert tilraunir til
á þann hátt að auka hraða
framkvæmdanna og afköst.
Inni í Blönduhlíð við Hafnar-
fjarðarveg rekur félagið tré-
smíðaverkstæði og aðra undir-
búningsvinnu að bygginga-
framkvæmdum. Þar er og
geymsla fyrir byggingavörur.
En skrifstofa félagsins og
teiknistofa er í Lækjargötu 10A.
Þar eru gerðar teilcningar að
mannvirkjum og í sambandi
við það framkvæmd öll verk-
fræðistörf og mælingar.
Framkvæmdastjórar félags-
ins eru verkfræðingarnir Gúst-
af E. Pálsson og Árlii Snævarr,
en formaður stjórnar ‘ei- IJörð-
ur Bjarnason arkitekt.
Hafnarhvoll, eitt mesta stórhýsi bæjarins, er
Almenna byggingafélagið hefir reist.
15
Grafvél sú, er Almenna hyggingafélagið notar
við grunngröft.