Vísir - 17.06.1944, Side 35

Vísir - 17.06.1944, Side 35
VlSIR —' ÞJiÓÐII ÁTÍÐARBLAÐ 35 m rwi M 1WW A H Eitir M 1 Æ. JH Æ. I HII. .IÓ\SSO\ Islenzka ströndin er löng og vogskorin. Boðar, blindsker og grynningar eru víða, og gera siglingar hættulegar. Harðir straumar liggja þungt og ber skjótlega af leið, sé ekki fyllstu varúðar gætt. Löng skammdeg- isnótt, þokur og dimmviðri eru lika staðreyndir, sem hver ís- lenzkur sjómaður verður að reikna með. En þrátt lyrir allt þetta verða Islendingar að sigla. Siglingar eru Islendingum meira en nauðsynlegar — þær eru lífsnauðsyn. Fiskinn verður að sækja á miðin. Flutningar að og frá landinu verða að fara fram á sjó, og sömuleiðis llutn- ingarnir frá hinum mörgu sjáv- arplássum og til þeirra. Næst skipum, og mönnum til að fara með þau, er tvennt nauðsynleg- ast til að siglingar geti átt sér stað — vitar og sjómerki, sem geta veitt sjófarendum upplýs- ingar um rétta leið og varað þá við hættulegum stöðum, og hafnir og bryggjur, þar sem skipin geta fermt og affermt og legið um kyrrt, ef á þarf að halda. Ilér verður aðeins far- ið nokkrum orðum um fyrra at- riðið: vitana. Fyrstu vitarnir. Fyrsta desember í fyrra voru liðin. 65 ár síðan fyrst vor kveikt á vita á Islandi. Það var Reykjanesvitinn eldri, á Vala- hnúk, sem þá var tekinn til notkunar, og um 20 ára skeið var hann eini viti landsins. — 1897 voru sett í hann ný ljósa- tæki, og sama sumar voru vitar. reistir á Garðskaga og Gróttu, auk hafnarvita fyrir Reykjavík. Líður svo fram vfir aldamót, að fleira er ekki aðhafzt. 1902 voru svo reistir vitar á Elliða- ey i Breiðafirði og á Arnarnesi við Isafjarðardjúp. Enn líða 4 ár, eða fram til ársins 1906, en þá er Stórhöfðavitinn í Vest- mannaeyjum hyggður. Fyrsta tímabilinu í sögu vitamálanna lýkur svo með því, að Reykja- nesvitinn er endurbyggður á Bæjarfelli 1907, þar sem hann nú stendur. Á þessu 30 ára tímabili höfðu því verið reistir vitar á 7 stöðum, eða sem svar- aði 1 vita 4. hvert ár, eða tæp- lega það. Nú gerist margt í senn. Æðsta umboðsstjórnin flyzt inn í landið og nýtt almennt fram- faratímabil hefst. Umsjónin með vitahyggingunum færist um svipað leyti inn í landið, þar sem sérstakur verkfræðingur er ráðinn til að hafa þessar fram- kvæmdir með höndum, en hing- að til hafði flotamálastjórnin danska séð um byggingarnar. Enn fremur koma nú fram um þetta leyti nýjar aðferðir til vitalýsingar, sem taka mjög fram því, er áður þekktist á þessu sviði, og gera fram- kvæmdir auðveldari. Allt þetta varð til þess, að segja má að nýtt tímabil hefjist í vitamál- unum um þetta leyti og upp lrá þessu reki hver vitabyggingin aðra sleitulaust. Auðvitað hefir verið misjafnlega mikið byggt hin ýmsu ár, en alltaf hefir ver- ið haldið í áttina á hverju ári. Dalatangi og Siglunes 1908, öndverðarnes og litli Reykja- nesvitinn 1909, Dyrhólaey og Langanes 1910, Rifstangi 1911, Vattarnes 1912, Bjargtangi, Kálfshamarsnes, Skagatá og Flatey á Skjálfanda 1913, og svona mætti telja allar götur fram til ársins í ár. Nú eru vit- arnir alls á landinu 140 að með- töldum smávitum þeim, sem reknir eru af einstökum bæjar- og sveitarfélögum. I staðinn fyrir einn vita 4. hvert ár, fram til 1907, hafa þvi verið byggðir að meðaltali 3—4 vitar á hverju ári síðan. Vitatækin. Ljóstækin í Reykjanesvitan- um fyrsta voru þannig, að 15 olíulömpum, sem hver varl4”’, var komið fyrir, hverjum í sín- um látúnsspegli. Ljósmagnið var ekki mikið og erfitt að halda \'ið öllum þessum lömp- um og speglum, enda sýndi það sig, að 1897 voru þessi tæki orðin ónýt, og voru þá ný ljós- tæki sett upp, 4. fl. ljóskróna með olíulampa, sem talið var að hefði stórum aukið ljós- magnið. 1 þeim vitum, sem byggðir voru næst á eftir, voru yfirleitt notuð svipuð tæki, olíu- ljós og ljósakróna annað hvort „róterandi“, sem var snúið af lóðum, eða með löstum ljósa- krónum og þá með stöðugu ljósi. Til þess að auðkenna vit- ann, varð þá að láta lilífar snú- ast í kringum ljósakrónuna. Eftir 1908 hefir megnið af öll- um vitum, sem bvggðir hafa verið, verið gasvitar. Þeir eru ódýrari í rekstri, öruggari og þurfa niinni gæzlu. Gömlu olíu- vitunum er líka smátt og smátt verið að breyta í gasvita, svo að nú eru ekki eltir nema 4 vitar, sem reknir eru af ríkis- sjóði, er hafa olíuljós. Fjármálin. Kostnaðurinn við þessar framkvæmdir hefir, eins og gefur að skilja, orðið allmik- ill. Byggingarkostnaðurinn — stofnkostnaðurinn — hefir ver- ið þessi í krónum: 1878—96 (19 ár) . 28.426,61 1897—06 (lOár) . 55.614,17 1907—17 (11 ár) . 431.279,49 1918—42 (25 ár) . 2.678.579,61 Samtals 3.193.899,88 Tölurnar tala sínu máli. Af öllu því fé, sem frá uppliafi hefir verið varið til vitabygginganna, hefir um 84% verið notað síð- ustu 25 árin. Auk þess er svo reksturskostnaðurinn, sem sið- ustu árin fyrir stríð var um (4 millj. króna á ári, en hefir vit- anlega nú vaxið gífurlega. Auðvitað hefir ríkissjóðurinn ekki getað staðizt þessi miklu útgjöld án þess að fá fé á móti. Með vitagjaldinu hefir þessi tekjustofn fengizt, og hefir hvorttveggja staðizt á nokkurn vegin, vitagjöldin í ríkissjóð- inn og kostnaðurinn við bygg- ingu og starfrækslu vitann^. Þó hefir hin síðustu árin fyrir stríð hallað verulega á ríkis- sjóðinn, þannig að ekki hefir verið notað allt vitagjaldið í þessú augnamiði. Allra síðustu árin hefir aftur meira fé verið varið úr ríkissjóði árlega en vitagjaldinu nemur, og hafa því á ný jafnazt metin. En ennþá er ríkissjóður meira en skað- laus af vitarekstrinum, sé allt vitagjaldið talið honum til tekna, eins og sjálfsagt er.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.