Vísir - 17.06.1944, Blaðsíða 136
136
VÍSIR — ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ
Hafnarhvoll.
Sölubúðjn.
Friðrik Bertelsen & Co. h.f.
Fyrir liðlega 10 árum stofn-
aði kornungur maður heild-
verzlun, og þótti mörgum ekki
byrlega blása, því að Friðrik
Bertelsen var þá aðeins 23 ára
að aldri og 'ekld verzlunar-
menntaður maður, þótt hann
hefði áður unnið fimm ár að
verzlun, bæði hérlendis og í
Bretlandi.
Áður hafði Friðrik stundað
málaranám hér og síðan gengið
á listiðnskóla í Oslo, til að nema
skreytingu og auglýsingateikn-
ingar. En áður en hann fengi
lokið námi, veiktist hann og
varð að hverfa heim. Réðst hann
sem sölumaður til föður síns, A.
J. Bertelsen heildsala og starf-
aði þar í liðlega þrjú ár.
Árið 1932 leit ekki björgulega
út fyrir verzlunarmenn. Þá var
innflutningshöftum komið á,
vegna sívaxandi skorts á erlend-
um gjaldeyri, og var það margra
álit, að íslenzk verzlun myndi
verða að draga allmikið saman
seglin. A. J. Bertelsen hugði sig
myndu þurfa að fækka starfs-
fólki, og bauðst þá Friðrik til
að fara úr þjónustu hans.
Hann stofnaði konfektgerð og
rak hana í félagi við aðra í tvö
ár, en 1934 réðst hann í það að
stofna sina eigin heildverzlun,
og 25. apríl flutti hann inn í
fyrsta húsnæði sitt í Hafnarstr.
11. Til að byrja með verzlaði
hann aðallega með vefnaðarvör-
ur, sem hann aflaði sér frá
Dgpptiörku, en brátt tók alger
lega fyrir innflutning þaðan.
Við það bættist, að hann varð
fyrir slysi og var að talsverðu
leyti óvinnufær marga mánuði,
m hann var algerlega upp á sína
eigin vinnu kominn þá, enda
hafði haxm ekki annað starfs-
manna en einn sendisvein. Greip
hann þá til þess ráðs, að taka
að sér auglýsingateikningar fyr-
ir kaupsýslumenn, en því starfi
gat hann sinnt, þrátt fyrir
meiðsli sín.
Þegar er Friðrik var orðinn
ferðafær sigldi hann til Þýzka-
lands til að afla sér verzlunar-
sambanda, en frá því landi horði
þá bezt um innflutning. Það var
þó ekki fyrr en í júní 1936, að
hann gat byrjað aftur að verzla
með nokkrum árangri. Þá flutti
hann sig yfir götuna í Edin-
borgarhúsið og réði sér skrif-
stofumann og sendisvein. Brátt
tóku viðskiptin að aukast, og
eftir aðra utanferð var þetta
húsnæði orðið of lítið. Vorið
1938 flutti hann verzlunina í
Lækjargötu 6 B, og voru þá sex
manns teknir að vinna að verzl-
uninni.
En húsnæðisvandamálið jókst
enn með aukinni veltu, og 1940
tókst Friðrik að fá leigt miklu
rúmbetra húsnæði á efri. hæð
Verzlunar Björns Kristjánsson-
sonar, Vesturgötu 4. Þó var
verzlunin tæplega flutt í þetta
nýja húsnæði fyrr en í ljós kom
að það var alltof lítið, og réðst
hann því í að kaupa húseign-
ina Vesturgötu 17. Þar var raun-
ar miklu meira húsnæði, en sá
böggul fylgdi skammrifi, að eigi
var hægt að auka það, sökum
húsglfiigulaganna. En samkv.
þeim mátti fingum leigjansia
segja upp húsnæði. Verzlunin
hafði því eigi verið þar nema
tvö ár, þegar að því ráði var
horfið, að kaupa tvær neðstu
hæðirnar 1 hinu myndarlega
verzlunarhýsi Hafnarhvoli, á
gatnamótum Tryggvagötu og
Skúlagötu.
Friðrik Bertelsen & Co. h/f.
eins og fyrirtækið nefndist, eft-
ir að því hafði verið breytt í
hlutafélag seint á árinu 1938,
flutti í hið nýja húsnæði í april
1943, og hefir fengið þar full-
nægjandi húsakynni. Á neðstu
hæðinni eru húsakynni fyrir
smáverzlun með bifreiðavara-
hluti og útsala fyrir hinar
heimsfrægu efnasmiðjur E. I.
du Pont de Nemours & Co. Inc.
í Delaware, Bandaríkjunum, en
svo heita fullu nafni verksmiðj-
ur þær, er almennt ganga undir
nafninu DUPONT og framleiða
málningarvörur, lím o. fl.
Við heildverzlunina starfa nú
um tuttugu manns, en auk þess
er átta manna starfslið á skrif-
stofu fyrirtækisins í New York,
er Stefán Wathne veitir for-
stöðu. Fulltrúi fyrirtældsins hér
er Hilmar Foss, er jafnframt
stjórnar hjúkrunarvörudeild
þess, en gjaldkeri Otto Wathne.
Eru þessir menn og hluthafar.
Skrifstofur og vörugeymslur fé-
lagsins í Hafnarhvoli munu vera
með þeim stærstu og glæsileg-
ustu, er hér þelckjast. Hagur
fyrirtækisins og viðskiptasam-
bönd hér og erlendis bera vott
um myndarskap manna þeirra,
er að þessu unga fyrirtæki
standa og þó sér í lagi stofn-
anda þess og framkvæmdar-
stjóra.
Skrifstofan.
Vörugeymslan.