Vísir - 17.06.1944, Blaðsíða 48
48
VÍSIR — Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐ
Starfsstúlkur Efnagerðarinnar fylla á flöskur.
Snyrtivöruverksmiðjan. Fyllt á flöskur.
r
I
SNYRTIVÖRUVERKSMIÐJ-
AN VERA SIMILLON.
Árið 1929 kom frú Vera Si-
millon (frú Ingibjörg H. Stein)
hingað heim frá París, þar sem
hún hafði rekið snyrtistofu. Hér
stofnsetti hún nýtízku snyrti-
stofu og tólc brátt að framleiða
ýmsar snyrti- og fegrunarvör-
ur. Uppskriftir sínar hafði frú-
in tekið saman á löngum starfs-
tíma og með rannsóknum og
skólanámi. Þær hafði hún selt
til afnota i París og Hollywood,
og eru þær enn framleiddar á
þeim stöðum, eftir því sem bezt
er vitað. Snyrtivöruframl'eiðslu
hennar tók firmað Skúli Jó-
hannsson & Co. að sér í aðal-
umboð 1934, og árið eftir
keypti það firma verksmiðju
hennar og uppskriftir. Firmað
jók mjög framleiðsluna og
bætti við nýjum tegundum.
Árið 1938 gekk einn eigenda
firmans Skúli Jóhannsson &
Co. úr félagsskapnum og eign-
aðist snyrtivöruverksmiðjuna,
en firmað hélt áfram að selja
afurðirnar með aðalumboði.
Rak hinn nýi eigandi, Oddur
H. Helgason, verksmiðjuna einn
um skeið, eða þar til 1941, að
hann stofnaði firmað O. H.
Helgason & Co., sem eignaðist
verksmiðjuna og tók nokkru
síðar einnig við sölustarfinu. —
Verksmiðjan var fyrst rekin í
sambandi við snyrtistofu frú
Veru Simillon í Túngötu 6, sið-
an í húsnæði Skúla Jóhanns-
sonar & Co. í Bankastræti 7,
síðar á Hringbraut 34, og loks
í húsi Odds Helgasonar, Þing-
holtsstræti 34, unz hún var
flutt í hið nýja verksmiðju- og
verzlunarhús O. H. Helgasonar
& Co. á Borgartúni 4.
Verksmiðjan framleiðir allar
helztu tegundir af fegrunar- og
snyrtivörum, svo sem andlits-
smyrsl, andlitsvökva (skin to-
nic), púður, augnbrúna- og
augnlokalit, varalit, naglalakk,
fótabaðsalt og margt fleira og
fjölgar að staðaldri framleiðslu-
vörum, enda fer salan jafnt
vaxandi.
Það er fróðlegt að skoða
húsakynni verksmiðjunnar og
starfsháttu. Fer þar saman
vélavinna og handa. Vélar
blanda smyrslin og aðrar vélar
fylla skálpa og krukkur, en
samæft og handfljótt starfsfólk
sér vélunum fyrir efnum og
stjórnar þeim. Áfyllingarvélar
verksmiðjunnar geta fyllt 4—
500 skálpa á klukkustund, og
gefur því að skilja, að ekki
vinna þær vélar alltaf á fullum
hraða. Vegna þess, hve innlend-
ur markaður er smár, eru vél-
arnar reknar til skiptis og af-
kastamöguleikar þeirra ekki
notaðir til fulls. Verksmiðjan
hefir flutt nokkuð út af vörum,
en vinnur aðallega fyrir inn-
lendan markað.
Verksmiðjan varð fyrst til
þess að ganga frá vörum sín-
um í smekklegum öskjum, er
hentugar væru til tækifæris-
gjafa. Þessir gjafakassar hafa
náð vinsældum og einnig orðið
til að vekja athygli á vörunum.
EFNAGERÐIN STJARNAN.
Um 1930 hafði Mjólkurfélag
Reykjavíkur stofnað litla efna-
gerð í húsi sínu við Hafnar-
stræti og framleiddi þar eink-
um saft, edik, sósulit og ann-
að slíkt. Einnig malaði efna-
gerðin og pakkaði kryddvörum
og framleiddi kaffibæti. Verk-
smiðju þessari var fyrst í stað
eingöngu ætlað að framleiða
fyrir smásöluverzlun félagsins,
Liverpool, og handa félags-
mönnum. Af þessum orsökum
varð starfræksla miklu minni
en vélalcostur gaf ástæðu til,
því að mest er framleitt eftir
hendinni. Félaginu þótti ekki
ástæða til að reka verksmiðj-
una í svo smáum stil og seldi
hana því hlutafélagi, sem rak
hana í nokkur ár.
Árið 1941 keypti O. H. Helga-
son & Co. Efnagerðina Stjörn-
una af þáverandi eigendum og
ráku hana áfram í sama hús-
næði, þar til er verksmiðjuhús-
ið á Borgartúni 4 var fullgert,
og fluttist verksmiðjan þá í það
húsnæði.
1 fyrra réðist Björn Þórðar-
son verksmiðjustjóri til Stjörn-
unnar, en hann hefir unnið að
efnagerð í um 20 ár.
I hinu nýja húsnæði, sem sér-
staklega var ætlað verksmiðj-
um, sköpuðust brátt miklu betri
framleiðsluskilyrði, enda komst
allur rekstur hennar á nýtt stig.
Var vörutegundum fjölgað og
afköst aukin, enda færðist nýtt
líf í söluna. Þó getur verksmiðj-
an eigi framleitt helming af því
magni, sem húri mundi geta af-
kastað og selt, vegna skorts á
skömmtunarvörum.
0. H. HELGAS0N & C0.
Eins og áður getur, gekk
Oddur H. Helgason úr firmanu
Skúli Jóhannsson & Co. 1938
og rak snyrtivöruverksmiðjuna
Vera Simillon áfram sem einka-
eigandi. Jafnframt tók hann að
stunda útgerð, og óx sú starf-
semi hans brátt svo, að honum
þótti nauðsyn að stofna til sér-
staks fyrirtækis um verksmiðju
og verzlunarrékstur sinn. Sem
félaga fékk hann þá Gunnar
Guðmundsson, er staðið hafði
fyrir verksmiðjunni og Sigurð
Þórðarson, er verið hafði skrif-
stofustjóri hjá Skúla Jóhanns-
syni & Co. Firmað O. H. Helga-
son & Co. stofnuðu þeir félagar
snemma á árinu 1941 og bættu
þá þegar efnagerðinni Stjörn-
unni við rekstur sinn.
Jafnframt efndu þeir til
heildverzlunar og öfluðu við-
skiptasambanda í Englandi.
Tókst þeim að ná samböndum
við ágætar enskar verksmiðjur,
einkum í fatnaði og vefnaðar-
vörum og skyldum vörum.
Sendu þeir umboðsmann til
Englands til að afla sambanda
og höfðu þar starfandi fulltrúa
allt árið 1942. En innflutningur
þaðan hefir að mestu leyti lagzt
niður í bili, vegna verzlunar-
hafta.
Nú rekur firmað einkum við-
skipti við Ameríku og hefir þar
fulltrúa. Einnig hefir það ný-
lega stofnað sérverzlun með
vélar og verkfæri, sem aflað er
frá Ameríku.
Ilúsið Borgartún. 4.