Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 15

Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 15 Fjarkennsla við VMA komin af tilraunastigi Mun fleiri umsóknir en hægt er að sinna Morgunblaðið/Kristján ADAM Oskarsson kerfisstjóri, Haukur Jónsson skólameistari og Hálf- dán Örnólfsson aðstoðarskólameistari. FJARKENNSLA í Verkmennta- skólanum á Akureyri hefur síðustu fimm ár verið rekin sem tilrauna- verkefni en því skeiði lauk um síð- ustu áramót. Ætlunin er að þjónust- an verði framvegis mikilvægur þátt- ur í starfsemi Verkmenntaskólans. A þessum tíma hefur starfsemin vaxið og dafnað og stunda nú 270 nemendur nám í fjarkennslu við skólann. Haukur Jónsson skólameistari sagði nokkur tímamót í fjarkennsl- unni nú þegar hún færi af tilrauna- stiginu, en vilyrði hefði fengist í menntamálaráðuneytinu fyrh' því, að auknar fjárveitingar fengjust til verkefnisins. Alls eru nú 5 tölvustof- ur í skólanum og nemendur hafa að- gang að 80 til 90 tölvum. Nýlega var öflugt tölvuherbergi tekið í notkun við skólann eða nokkurs konar verk- efnastofa sem ætlunin er að bjóða fyrirtækjum og stofnunum að nýta iyrir námskeiðshald íyrh- starfsfólk sitt. Haukur Agústsson kennslustjóri fjarkennslu og öldungadeildar sagði ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hf. hefur leigt frystitogarann Sval- bak EA á ný til þýska útgerðarfyrh- tækisins Mecklenburger Hochseef- ischerei, MHF. Sæmundur Friðriks- son, útgerðarstjóri ÚA, sagði miðað við að skipinu öðlist nýjan fána út um miðjan apríl og það verði í leigu í um hálft ár. Sæmundur sagði að Svalbakur færi til karfaveiða á Reykjaneshrygg á vegum MHF í næsta mánuði. Skipið var í leigu hjá MHF á síðasta ári en kom til ÚA í byrjun nóvember sl. Svalbakur hefur farið þrjá túra fyifr ÚA frá þeim tíma og á eftir að fara einn túr til viðbótar á vegum fé- að vorið 1994 hefði lítil tilraun verið gerð til að prófa hvort hægt væri að kenna gegnum tölvur, byrjað hefði verið á að kenna einn áfanga í ensku og einn kennari sinnti kennslunni. Nú væru 116 áfangar í boði og lagsins. Svalbakur kom til Akureyr- ar í vikunni, eftir rúmlega 30 daga túr, og var aflaverðmætið um 53 milljónir króna. Afli upp úr sjó var rúmlega 460 tonn en uppstaðan var karfi og þorskur. Kaldbakur EA, ísfisktogai'i ÚA hélt til veiða á ný í gær, eftir að hafa landað rúmum 160 tonnum hjá félag- inu, mest karfa. Þá kemur ísfisktog- arinn Árbakur EA inn til löndunar um helgina með fullfermi, eða 120- 130 tonn, eftir vikutúr. Arbakur hef- ur verið að gera það ágætt að undan- förnu en skipið landaði um 70 tonn- um á Eskifirði nýlega eftir fjögun-a daga veiðiferð. kennarar 48 talsins. Áður voru kennarar eingöngu úr VMA, en nú eru á bilinu 40 til 45% þeirra utan skólans, m.a. er einn í Noregi. „Það skiptir engu hvar nemendur og kennarar eru staðsettir," sagði RANNSÓKNARNET verður sett upp á vegum Rannsóknarráðs fs- lands í samvinnu við Háskóla Is- lands og Háskólann á Akureyri. Tilgangurinn er að efia rann- sóknir og uppbyggingu þekking- ar á íslandi með aukinni sam- hæfingu og samstarfi háskól- anna og stofnana atvinnuveg- anna. Þetta kom fram í máli Þor- steins Gunnarssonar, rektors Háskólans á Akureyri, á fundi um þekkingarbúskap og byggða- þróun sem Rannsóknarráð Is- lands efndi til í Háskólanum á Akureyri í gær. „Rökin fyrir því að reka byggðastefnu eru efnahagsleg, menningarleg og snúa að örygg- ishagsmunum. En ekki síst felast rökin fyrir því að reka byggða- stefnu í þeirri ögrun sem felst í því að vera Islendingur og búa og starfa í strjálbýlu og harðbýlu landi. Sú íjölbreytta og krefjandi reynsla gerir Islendingum kleift að leggja sitt af mörkum til ann- arra þjóða. Ekki síst mun upp- bygging þekkingarsamféiags 21. aldarinnar við slikar aðstæður geta orðið markvert framlag Is- lendinga til heimsmenningarinn- ar,“ sagði Þorsteinn og bætti við að háskóli, sem tæki það alvar- Iega að vinna að byggðaþróun, þyrfti að hafa það sem stefnu að Haukur, en til að mynda á síðasta misseri dreifðust nemendur yfir 17 tímabelti, voru allt frá Tailandi og að strönd Kaliforníu. Mai-gir nem- anna eru í Evrópu og Bandaríkjun- um, einnig í Rússlandi, Grænlandi og Mið-Ameríku. Að jafnaði sækja um 400 til 450 manns um nám í fjarkennslunni en ekki er unnt að taka við nema um 250 til 270 nemendum á önn. Kennd- ir eru áfangar til stúdentsprófs og þegar hafa stúdentar verið braut- skráðir frá skólanum úr fjarkennslu. í framtíðinni er ætlunin að byggja upp starfsgreinatengt nám, þróa námskeiðsform í samvinnu við at- vinnulífið og þá sagði Haukur það sinn draum að bjóða upp á kennslu fyrir útlendinga í íslensku og kynna þeim menningu og sögu landsins. Adam Oskarsson kerfisstjóri sagði að uppbyggingin væri miðuð við eðlilega tölvueign almennings. „Við reynum að hafa þetta eins ein- falt og mögulegt er svo allir eigi þess kost að stunda námið,“ sagði Adam. þjóna atvinnulífi um allt land og líta á það sem hlutverk sitt að auka lífsgæði í landinu með því að leggja sérstaka áherslu á landsbyggðina. „Þjóðarháskóli" Um fyrirhugað rannsóknarnet sagði háskólarektor, að sú fram- tíðarsýn kæmi fram í stefnumót- un Rannsóknarráðs íslands að rannsóknarstofnanir hins opin- bera ásamt háskóluin landsins mynduðu sameiginlegan heild- arvettvang, eins konar „þjóðar- háskóla“ til þekkingaruppbygg- ingar, vísindaþjálfunar og hag- nýtra rannsókna. Rannsóknar- ráð Island í samvinnu við Há- skóla Islands og Háskólann á Akureyri hefðu haft uin það for- göngu að bjóða rannsóknar- stofnunum atvinnuveganna til samstarfs uin að setja rannsókn- ametið á laggirnar. Ávinningurinn gæti m.a. falið í sér að stofnanirnar efla þekk- ingaruppbyggingu um leið og starfsmenn þeirra tengjast þjálf- un nemenda í rannsóknarnámi, háskólarnir tengjast öfiugri að- stöðu til rannsókna og samstarf þeirra við atvinnulífið eykst og fyrirtækjum býðst þátttaka í öfl- ugu rannsóknar- og þróunar- starfi. Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Sunnu- dagaskólinn verður kl. 11 á morgun í safnaðarheimilinu. Föndur. Guðs- þjónusta kl. 14 sama dag, flutt verður litanía séra Bjarna Þor- steinssonar, sem er með því feg- ursta sem íslenska kirkjan á. Æskulýðsfélagið fer í skautaferð á Vestmannsvatn á morgun, takið með ykkur nesti. Biblíulestur í safnaðarheimilinu kl. 20.30 á mánu- dagskvöld í umsjá sr. Guðmundar Guðmundssonar. Mömmumorgunn í safnaðarheimili kl. 10 til 12 á mið- vikudag. Föstuguðsþjónusta kl. 20.30 á miðvikudagskvöld, sungið úr Passíusálmum, lesið úr píslar- sögunni og flutt litanía. Kyrrðar- og fyrirbænastund á fimmtudag kl. 12 sem hefst með orgelleik. Sam- skipta- og sjálfsstyrkingarnám- skeiðið Konur eru konum bestar hefst mánudaginn 22. mars í Lax- dalshúsi, leiðbeinandi sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Hjónanámskeið verður haldið fimmtudagskvöldið 25. mars í safnaðarheimilinu. GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og messa kl. 11 á morgun, sameig- inlegt upphaf. Foreldrar hvattir til að mæta með börnunum, vænst er þátttöku fermingarbama og for- eldra þeirra. Fundur æskulýðsfé- lagsins verður kl. 20 í kirkjunni. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera kl. 12 til 13 á miðvikudag. Helgi- stund og léttur málsverður að henni lokinni. Fjölskyldumorgunn kl. 10 til 12 á fimmtudag, heitt á könnunni og safi fyrir börnin. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 11 á morgun, almenn samkoma kl. 17 og unglingasam- koma kl. 20. Heimilasamband kl. 15 á mánudag. Krakkaklúbbur fyrir 6-10 ára á miðvikudag og 11 plús 'mínus fyrir 10-12 ára á fóstudag kl. 17. Flóamarkaður á fostudögum frá 10 til 18. HRÍSEYJARKIRKJA: Sunnudaga- skóli í kirkjunni kl. 11 á morgun, sunnudag. Kirkjukvöld í kirkjunni kl. 20.30 um kvöldið. Ræðumenn verða dr. Arnór Sigfússon fugla- fræðingur og Arna Ýn- Sigurðar- dóttir guðfræðingur. HÚSAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli á morgun kl. 14. Vænst er þátttöku fermingarbarna og for- eldra þeirra. Ræðumaður er Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálp- arstarfs kirkjunnar. Kaffi og með- læti eftir messu í Kirkjubæ þar sem Jónas kynnir hjálparstarfið í máli og myndum. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam- komur helgarinnar falla niður vegna sýninga á leikritinu „Frá hliðum himins til loga vítis“, sem sýnt verður í félagsheimilinu Laugaborg í Eyjafjarðarsveit sunnudags-, mánudags- og þriðju- dagskvöld kl. 20 öll kvöldin. Að- gangur er ókeypis og allir velkomn- ir meðan húsrúm leyfir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag, ld. 18 og á morgun, sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við Eyrarlandsveg 26. KFUM og K: Almenn samkoma kl. 20.30 á sunnudagskvöld. Ræðumað- ur er Jónas Þórisson. Fundur í yngri deild kl. 17.30 á mánudag fyr- ir drengi og stúlkur 8-12 ára. LAUGALANDSPRESTAKALL: Messa í Kaupvangskirkju kl. 11 á morgun. Messa í Grundarkirkju sama dag kl. 13.30 og á Krist- nesspítala kl. 15. Foreldrar vænt- anlegra fenningarbarna sérstak- lega velkomnir ásamt börnum sín- um, en stutt stund verður með þeim og sóknarpresti að lokinni at- höfn. Föstumessa verður í Munka- þverárkirkju kl. 20.30 á miðviku- dagskvöld. ÓL AFSF J ARÐ ARKIRKJ A: Sunnu- dagaskóli kl. 11 á morgun, messa kl. 14, sr. Guðmundur Guðmunds- son messar, kirkjukaffi. SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli kl. 13.30 á morgun í Lundarskóla. Al- menn samkoma á Sjónarhæð, Hafnarstræti 63, kl. 17. Fundur fyrir 6-12 ára börn kl. 18 á Sjónar- hæð. Fyrirhuguð verslunarbygging í Vatns- mýrinni í Reykjavík Mikil eftirspurn eftir plássi GÍFURLEG efth-spurn er eftir plássi í því verslunarhúsnæði, sem Vatnsmýrin ehf. fyrh'hugar að reisa í Vatnsmýrinni i Reykjavík, við Um- ferðarmiðstöðina BSI. Kaupfélag Eyfirðinga á 60% hlut í félaginu og sagði Sigmundur Ófeigsson, fram- kvæmdastjóri verslunarsviðs KEA, að áhuginn væri miklu meiri en gert hafi verið ráð fyrir. „Við erum því að reyna hámarka byggingarétt á lóðinni, sem er um 3 hektarar, en förum þó ekki af stað fyrr en gengið hefur verið frá öllum málum gagnvart umhverfinu og borgaryfirvöldum. Við erum að semja við skipulagsyfirvöld og vænt- anlega fer fram grenndarkynning, eins og við barnaspítalann þai-na skammt frá.“ Margir vilja selja upp pítsustað Sigmundur sagði að áhuginn hjá þeim aðilum sem reka pítsustaði væri sérstaklega mikill og að nánast allir þeir aðilar sem reka slíka staði hafi haft samband. Auk þess fjöl- mai'gir aðrir aðilar sem eru með sér- verslanir og annan rekstur. Sigmundur sagði að BSÍ vildi vera áfram á sama stað og tengjast KEA og félagið sjái sér hag í því. Hann sagði að einnig hafi verið rætt um að Flugrútan, sem sér um akstur til Keflavíkurflugvallar, komi þarna á svæðið. Morgunblaðið/Kristján SVALBAKUR EA fer á ný undir þýskan fána í næsta mánuði. Áður fer skipið einn túr til viðbótar á vegum ÚA. Svalbakur EA undir þýskan fána á ný Morgunblaðið/Kristján FRÁ fundi um þekkingarbúskap og byggðaþróun í Háskólanum á Akureyri í gær. Rannsóknarráð íslands, Háskóli íslands og Háskólinn á Akureyri Setja á laggirnar rannsóknarnet
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.