Morgunblaðið - 13.03.1999, Side 20
20 LAUGAKDAGUR 13. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Heimsókn erlendra kenn-
ara í Gaulverjaskóla
Gaulverjabæ - Grunnskólakenn-
arar frá Hollandi, Bretlandi og
Noregi heimsóttu fyrir skömmu
Gaulverjaskóla í Gaulverjabæjar-
hreppi og kynntu sér aðstæður í
íslenskum skóla.
Gauti Jóhannesson skólastjóri
kvaðst fyrir þremur árum hafa
frétt af þessari áætlun Evrópu-
sambandsins og verið vel tekið á
Alþjóðaskrifstofu háskólastigs-
ins. Málin þróuðust síðan þannig
að samstarf komst á. Samskiptin
eru styrkt af Sókratesi - mennta-
áætlun Evrópusambandsins og
falla undir svokallaðan Comení-
usar-hluta þess. Sjálfur hefur
Gauti heimsótt skóla erlendis á
vegum sambandsins en nú var
komið að íslendingum að vera
gestgjafar.
Kennurum þóttu aðstæður til
fyrirmyndar og einnig heimsóttu
þeir Skólaskrifstofu Suðurlands
á Selfossi og urðu þar margs vís-
ari um skipan skólamála í hérað-
inu. í skólanum fer fram kennsla
fyrsta til sjöunda bekkjar. Allir
nemendur Gaulverjaskóla njóta
tónlistarkennslu alla árganga og
læra á blokkflautu. Þetta fannst
gestunum mikið til um og undr-
uðust að allir væru jafnvígir á
Morgimbladið/Valdimar Guðjónsson
GAUTI Jóhannsson, iengst til hægri, ásamt gestunum frá
Bretlandi og Noregi.
nótur. Nemendurnir sungu vand-
ræðalítið lög sem kennararnir
höfðu með sér undir stjórn tón-
listarkennara frá Hollandi.
Ekki bárust kjaramál mikið í
tal og virtust þeir almennt sátt-
ari við kjör sín en kennarar hér-
lendis. Hins vegar bar agamál og
foreldrasamstarf á góma og virð-
ist umræðan um þau mál í öllum
löndunum af svipuðum toga og
hér. Aðspurður kvaðst Gauti
hafa orðið margs vísari í sam-
skiptunum en það sem mestu
skipti sneri beint að nemendum
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
OPIÐ í DAG FRÁ KL. 12-14. Netfang: http://habil.is/fmark/
OPIÐ í DAG FRÁ KL. 13-15
| SÉRBÝLI
Langagerði. Fallegt og vandað
271 fm einbýlishús, hæð og ris. 39 fm
innb. bílskúr með geymslukj. undir. Á
hæðinni eru 2 saml. stofur, eldhús, 2
svefnherb. og baðherb. Uppi eru 3
svefnherb. sjónvarpsherb. og w.c.
Vandaðar innréttingar. Merbau parket á
gólfum. Sundlaug. Nýtt þak og nýtt raf-
magn. Skjólsæll og góður garður. Verð
19,5 millj.
Vesturberg - laus fljótlega.
Mjög góð 99 fm íbúð á 2. hæð. Góð stofa,
3 svefnherb. Þvottaaðst. í íbúð. Vestur-
svalir. Laus 1. maí 1999. Blokkin nýlega
tekin í gegn. Áhv. lífsj. 3,0 millj. Verð 7,5
millj.
(H 3JA HERB.
Kjarrvegur. 327 fm einbýiishús,
tvær hæðir og kjallari. 32 fm bílskúr.
Frábær staðsetning í Fossvogi. Verð 29,0
millj.
Dvergabakki - endaíbúð. Fín
68 fm endaíbúö á 1. hæð í nýviðgerðu
húsi. 2 svefnherb. Nýlegt parket á stofu.
Tvennar svalir. Sameign góð. Laus fljót-
lega. Verð 7,0 millj.
Sævangur - Hf - UTSYNI.
Nýkomið í sölu mjög fallegt 403 fm ein-
býlishús sem er hæð og kjallari. Innb.
einf. bílskúr. Arinn í stofu, eikarinnr. í
eldhúsi, 3 svefnherb. auk húsbónda-
herb., vandað baðherb. I kjallara er sér
3ja herb. íbúð ca 100 fm. Auk þess er í
kj. stórt herb. og þvottaherb. Fallegur
ræktaður garður með heitum potti.
Glæsilegt útsýni.
Spítalastígur - heil hús-
eign. Heil húseign á góðum stað í
Þingholtunum. Húseignin er 170 fm og
skiptist í kjallara, hæð og ris. 3-4 íbúðir
eru í húsinu í dag. Mikið endumýjuð,
t.d. allar lagnir, rafmagn og gluggar að
mestu og nýtt þak. Eign sem gefur
mikla möguleika. Mjög falleg lóð.
Lindargata - sérinng.
Nýkomin I sölu góð 3ja-4ra herb. íbúð
á 1. hæð með sérinngangi. Fjórbýlis-
hús. 2 saml. skiptanl. stofur, 2 svefn-
herb. Lofthæð 2,7 m. Rósettur og listar
I loftum. Áhv. byggsj./ húsbr. 3,2 millj.
Verð 6,5 millj.
2JA HERB.
Reynimelur. Mjög góð 65 fm
íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli í vestur-
bænum. Parket og dúkar á gólfum.
Ibúð í mjög góðu standi svo og hús að
utan. Verð 6,9 millj.
Leifsgata - laus strax. góö
2ja herb. íbúð á 2. hæð. Nýjar raflagnir.
Laus strax. Lyklar á skrifstofu. Verð 5,1
millj.
Langholtsvegur. Timbureinbýiis-
hús, kjallari, hæð og ris um 191 fm. 2
íbúðir í húsinu f dag. Á hæðinni eru stór
stofa, rúmg. eldhús, 1 svefnherb. I risi er
opið rými. Kamína. I kjallara er 2ja herb.
ibúð og þvherb. Geymsluskúr á lóð. Bil-
skúrsréttur. Nýl. raf- og vatnslagnir,
gluggar og þak. Áhv. byggsj./lífsj. 1,5 milij.
0 HÆÐIR
Víðimelur - laus strax. snyrti-
leg 2ja herb. kjallaraíbúð i þríbýlishúsi á
þessum vinsæla stað. Parket. Nýlegt gler.
Laus strax. Verð 5,5 millj.
Hraunbær. Mjög góð 54 fm íbúð á
2. hæð. Góðar innréttingar. Suðursvalir.
Góð sameign. Áhv. byggsj. / húsbr. 3,4
millj. Laus 15. apríl nk. Verð 5,6 millj.
® ATVINNUHÚSNÆÐI
Bragagata. Falleg 89 fm íbúð á efri
hæð og í risi ásamt 26 fm bílskúr. Tvíbýlis-
hús. Saml. stofur, 3 svefnherb. Furugólf-
borð og dúkar á gólfum. Áhv. 4,2 millj.
Verð 8,3 millj.
Mávahlíð - bílskúr. Nýkomin í
sölu fin 100 fm 4ra herb. íbúð á efri
hæð f fjórbýli ásamt 26 fm bílskúr.
Saml. skiptanl. stofur, 2 svefnherb.
Svalir. Nýtt rafmagn. Áhv. byggsj. 2,6
millj. Verð 10,8 millj.
Funahöfði. Heil húseign við
Funahöfða. Húseignin sem er á þremur
hæðum skiptist eftirfarandi: Á jarðhæð
eru þrjú 115-150 fm bil sem öll eru
með innkeyrsludyrum. Á 2. hæð er 570
fm skrifstofuhæð sem auðvelt er að
skipta i tvær einingar. Efsta hæðin er
með bitum í lofti og er lofthæð frá 2,5
m upp í 5 m. Mikið útsýni á efri hæð.
Allar nánari uppl. á skrifstofu.
4RA-6 HERB.
Snorrabraut - útsýni. Björt
og falleg 91 fm 4ra herb. íbúð á 3.
hæð, efstu, í fjórbýli. 2 stofur, 2 góð
svefnherb. Parket. Gott útsýni. Áhv. 5,6
millj. Verð 8,5 millj.
Laugavegur. 418 fm heil húseign
sem er kj., verslunarhæð og 2 skrifstofu-
hæðir. 6 góð sérbílastæði. Möguleiki að
útb. ib. á hæðum. Góðar leigutekjur.
Síðumúli. Glæsilegt 250 fm vel
staðsett skrifstofuhúsnæði á 3. hæð.
Vel innréttað. Góð staðsetning.
sjálfum. Þeir hefðu fengið verk-
efni tengd samstarfinu. Hann
sagði þau sér nú mun meira með-
vitandi um sameiginlega ábyrgð
Evrópubúa varðandi umhverfis-
mál svo dæmi væri tekið. Einnig
hefði heimurinn minnkað í þeirra
augum og fært þeim heim sann-
inn um hve öll við hugsuðum líkt
í raun. Oháð þessu hefur skólinn
nýtt sér Netið og er til dæmis í
samstarfi við fámennan skóla í
Bandaríkjunum. A hann margt
skylt við skólann hér. Hann er úti
í sveit og foreldrarnir flestir
mjólkurframleiðendur.
Gauti sagði fámennu skólana
geta verið viðkvæma, t.d. fyrir
mannabreytingum og kostir
smæðarinnar skiluðu sér ekki
alltaf. Hins vegar ef vel væri hald-
ið á spöðunum væru kostirnir
margir. Til dæmis margumrædd
einsetning, meiri tími á hvern
nemanda, heit máltíð í hádeginu
og fleira mætti nefna. Hann
kvaðst þeirrar skoðunar að í stað
þess að leggja niður fámenna
skóla í nágrenni stærri sveitarfé-
laga við sameiningu þeirra mætti
bjóða foreldrum yngri nemenda
að senda þá í sveitaskólana þar
sem ljarðlægðir leyfa. Þannig
heilsdagsskóli í friðsælu umhverfi
hlyti að vera kostur sem margir
gætu hugsað sér, sagði Gauti Jó-
hannesson að lokum.
llllllofc
k i f r - ■ v . u
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
NEMENDUM Grunnskólans í Stykkishólmi þótti góð tilbreyting að
vera boðið upp á kennslu í skíðagöngu. Þeir eru fáir nemendurnir sem
eru vanir skíðum, en þeir voru fljótir að komast upp á lagið með að
beita skfðunum.
Gönguskíðakennsla
í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Kennarar frá Skíða-
sambandi Islands komu í síðustu viku
til Stykkishólms og buðu nemendum
grunnskólans upp á kennslu á göngu-
skíðum, en langt er síðan það var gert
síðast. Kennd eru grunnatriði skíða-
göngunnar og var nemendum látinn í
té skíðagönguútbúnaður. Hver hópm-
fékk 90 mínútna kennslu.
Það var heldur kalt þennan dag,
norðangustur, og ekki leist öllum vel
á að fara út og þramma á skíðum. En
það breyttist fljótt þegar komið var
á skíðin og að aflokinni kennslu
komu allir nemendurnir hressh- og
endurnærðir aftur í tíma. Alls tóku
þátt í kennslunni 180 nemendur.
Næstu daga sáust krakkar vera að
leika sér á skíðum og hefur hvatning
skíðakennaranna haft áhrif. I Stykk-
ishólmi er snjólétt og því koma ekki
margir dagar á hverjum vetri sem
hægt er að stunda skíðagöngu í ná-
grenni bæjarins.
Skíðakennslan er átak Skíðasam-
bands Islands um að kynna skíða-
göngu sem er ein hollasta alhliða
hreyfing sem völ er á. Flestir geta
stundað skíðagöngu þar sem hver og
einn ræður sínum hraða.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
ÞAU voru útnefndir íþróttamenn ársins í Keflavík: Asdís Óskarsdóttir,
sem tók við verðlaunum fyrir hönd bróður síns, Ingiberts, en hann var
kjörinn keilumaður ársins, Tryggvi Ingason (badminton) Gestur Gylfa-
son (knattspyrna) Anna María Sveinsdóttir (körfuknattleikur) Iris
Edda Heimisdóttir (sund). I fremri röð eru Asta Tryggvadóttir (fim-
leikar) og Ragnheiður Theódórsdóttir (karate).
Til sölu húsið Sævargarðar 15 (13)
á Seltjarnarnesi.
Einbýlishús með innangengum bíiskúr á einni hæð með vinnu- og útsýnis-
stofu með ómetanlegu útsýni, alls um 230 m2. Húsið skiptist í rúmgóða for-
stofu með gesta-WC, gott hol og fjölskyiduherbergi með innréttingum. Tvö
til þrjú svefnherbergi með fataskápum. Rúmgott flísalagt baðherbergi.
Stofa með fallegum arni og borðstofa með hurð út á sólverönd. Stofan er
parketlögð. Rúmgott flísalagt eldhús með eikarinnréttingum og hurð út á
flísalagða kvöldverönd.
Lóðin, sem er endalóð á afar friðsælum stað við lokaða verðlaunagötu, er
um 990 m2 með ræktuðum garði. Lokuð rúmgóð sólverönd í suður með
hurðum út úr svefnherbergi og borðstofu. Steyptur heitur pottur.
Húsið er allt hið vandaðasta.
Tilboð óskast í húsið til afhendingar eftir um þrjá mánuði
og upplýsingar veittar í síma 562 0635.
1969-1999
30 ára reynsla
Hleðsluglersteinar
Speglar
GLERVERKSMIÐJAN
Sam^e^k
Eyjasandur 2 • 850 Hella
® 487 5888 • Fax 487 5907
Anna María
Sveinsdóttir
íþróttamaður
Keflavíkur
Keflavík - Anna María Sveins-
dóttir, körfuknattleikskonan
kunna úr Keflavík, var útnefnd
íþróttamaður ársins hjá Iþrótta-
og ungmennafélagi Keflavíkur
sem nýlega veitti afreksmönnum
félagsins viðurkenningar fyrir
góða frammistöðu. Við það tæki-
færi voru stjórnarmönnum
einnig veittar viðurkenningar en
þess má geta að allar deildir fé-
lagsins voru reknar með hagn-
aði. Fram kom að slíkt væri ill-
mögulegt í framkvæmd og væri
þar að þakka þrotlausri vinnu
stjórnarmanna og sjálfboðaliða.
Sjö deildir eru starfandi innan
fþrótta- og ungmennafélags
Keflavíkur og útnefndu þær sína
íþróttamenn. Formaður félagsins
er Einar Haraldsson.
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og piis.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433