Morgunblaðið - 13.03.1999, Side 37

Morgunblaðið - 13.03.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 37 LISTIR Opnar danshátíð í Vilnius í Litháen Islenski dansflokkurinn Morgunblaðið/Þorkell PÉTUR Gunnarsson rithöfundur hlaut Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar í gær. Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar afhent Pétri Gunnarssyni „Hverju orði velt við“ PÉTUR Gunnarsson rithöfundur hlaut í gær Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar. Þann dag, fóstudaginn 12. mars 1999, voru 110 ár liðin frá fæðingu Þórbergs og af því tilefni voru stílverðlaunin afhent í fjórða sinn. „I verki sínu mun hann kenna og benda yfir ókomnar aldir Islands, sem vonandi verða margar," sagði Pétur m.a. um Þórberg í ávarpi sínu eftir að hann hafði tekið við verð- laununum úr hendi Bjöms Bjarna- sonar menntamálaráðherra. Til stílverðlaunanna var stofnað 1989 og hafa Gyrðir Elíasson, Þor- steinn frá Hamri og Þorsteinn Gylfa- son áður hlotið verðlaunin. Að stíl- verðlaununum standa Styrktarsjóð- ur Þórbergs Þórðarsonar og Mar- grétar Jónsdóttur, sem er í vörslu Háskóia Islands, Mál og menning og menntamálaráðuneytið. Verðlauna- féð er nú 300.000 krónur. í reglum um verðlaunin segir að þau séu veitt fyrir „óvenjulega stíl- gáfu og frumleik í meðferð íslensks máls. Þau geta hlotnast hverjum þeim sem vekur athygli fyrir góðan stfl, hvort sem viðkomandi er skáld, blaðamaður, stjórnmálamaður eða fæst af öðrum ástæðum við ritstörf.“ I dómnefnd sitja að þessu sinni Þor- leifur Hauksson f.h. Styrktarsjóðs Þórbergs og Margrétar, Páll Vals- son f.h. Máls og menningar og Gunn- ar Agúst Harðarson f.h. mennta- málaráðherra. í rökstuðningi dómnefndar segir m.a.: „Pétur Gunnarsson hefur frá upphafi rithöfundarferils síns lagt sérstaka rækt við stíl verka sinna, enda bera þau þess vitni, líkt og verk Þórbergs sjálfs, að hverju orði hefur verið velt við og merking þess og staða í hverri setningu verið gaum- gæfð til hins ítrasta. Pétur hefur fengist við fjölmargar tegundir bók- mennta og alls staðar komið fram með nýjungar, bæði í efnisvali og stfl, og haft mikil áhrif í þeim efnum. Það gfldir ekki einungis um skáldsögur hans, heldur einnig ljóð, ritgerðir hans og vasabækur sem geyma frumlegar athuganir á töfrum hins daglega lífs.“ Einnig er bent á nýlega útvarpsþætti Péturs um íslenska 17. og 18. öld. „Nú síðast hafa þýðingar hans á nokkrum stórvirkjum heims- bókmenntanna, m.a. Frú Bovary eft- ir Gustave Flaubert og í leit að liðn- um tíma eftir Marcel Proust vakið sérstaka athygli bókmenntaunnenda, ekki síst hinn vandaði íslenski bún- ingur.“ Dómnefndin vitnar einnig til orða Þórbergs sjálfs, sem sagðist eitt sinn hafa innleitt í íslenskan bók- menntastfl „meiri hraða, fjör, hittni og tilbrigði í stíl“. „Svo vel vill tU að þessa lýsingu má sem hægast heim- færa upp á stfl Péturs Gunnarsson- ar,“ segir í rökstuðningnum. ÍSLENSKI dansflokkurinn opnar danshátíð í Vilnius í Litháen mánu- daginn 15. mars. A efnisskrá verða fjögur verk, Diving og Flat Space Moving eftii- Ruis Horta sem dans- flokkurinn hefur sýnt í Borgarleik- húsinu að undanförnu, Minha Maria Bonita eftir Láru Stefáns- dóttur og Maðurinn er alltaf einn eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Verk Láru og Ólafar komu fram í Dans- höfundasamkeppni Islenska dans- flokksins sem haldin var í fyrsta skipti í október 1998. Þetta er í annað skipti sem ís- lenski dansflokkurinn tekur þátt í þessari hátíð í Vilnius; í fyrra sýndi hann þar verkin Kate’s Gallery og Wliite Streams eftir Ed Wubbe og Curver eftir Richard Wherlock. Áð- ur hafði Lára Stefánsdóttir sýnt sólóverkið Hræringar í Vilnius árið 1997. Meðal annarra dansflokka sem koma fram á hátíðinni eru Per Jon- son Dance Company frá Svíþjóð, Granhöj Dans frá Danmörku, Yol- ande Snaith Theatredance frá Bretlandi og Ariadone frá Frakk- landi. Auk sýningarinnar í Vilnius verð- ur sýning í hafnarborginni Klapeda 17. mars. Ferðin er styrkt af Teater og dans i norden og menntamálaráðu- neytinu. Landsbanki íslands er að- alsamstarfsaðili Islenska dans- flokksins. íþróttahúsinu, Strandgötu, Hafnarfirði sunnudaginn 14. mars. Mótið hefst kl. 14.00 Úrslit kl. 16.00 Karatesamband íslands I00 ára afmæli KFUM & KFUK I Perlunni um helgina 13. og 14. mars Sumarbúðir Gunni og Fellx KFUM og KFUK troða upp á laugardeginum. kynna starfsemi sína. Karlakórinn Fóstbræður Sýning leggur sitt af mörkum í fjölskylduguðs- á munum úr eigu þjónustunni á sunnudeginum. sr. Friðriks Friðrikssonar. 600 börn og unglingar leggja sitt af mörkum á hátíðinni. Snjall og Snjöll verða á staðnum. 5TEINAR WAAGE nota bene INGA 5544466 íöaSMi f dag, laugardag Á morgun, sunnudag Fjölbreytt æskulýðsdagskrá frá 14.00 Fjölskylduguðsþjónusta. kl. 13.30 til kl. 17.30. Guðsþjónusta fyrir alla aldurshópa. Karlakórinn Fóstbræður. Margvísleg framlög fjölhæfra krakka í Kanga kvartettinn. KFUM og KFUK ásamt fjölda annarra Leikþáttur atriða. 15.30 Léttir tónleikar i anda KFUM og KFUK. (Sjá bls. 11 í Morgunblaöinu í gær). Þorvaldur Halldórsson. Kanga kvartettinn. Erla og Rannveig Káradætur. Allir velkomnir! Ókeypis aðgangur KFUM og KFUK Holtavegi 28 Reykjavík Sími 588 8899

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.