Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Dansinn þýddur á færeysku
Páskamyndin
í Þórshöfn
Verk eftir Atla
Ingóifsson frum-
flutt í Berlín
ARDITTI-kvartettinn frumflytur
strengjakvartett eftir Atla Ingólfs-
son í Konzerthaus Berlín í dag,
laugardag, kl. 22, á Berlínartvíær-
ingnum. Kvartettinn heitir HZH:
Streiehquartett nr. 1. Verkið er
samið að beiðni stjórnenda Berlín-
artyíæringsins.
A mánudaginn heldur Atli fyrir-
lestur í Hochschule der Kunste um
kvartettinn og sjálfan sig.
----------------
Þrjár strengja-
sveitir í Seltjarn-
arneskirkju
TÓNSKÓLI Sigursveins D. Krist-
inssonar heldur tónleika í Seltjarn-
arneskirkju á morgun, sunnudag,
kl. 16. Fram koma þrjár strengja-
sveitir skólans og flytja verkefni
sín, samtals um 80 nemendur. M.a.
verða flutt verk eftir Corelli og
Bartók. Stjómendur eru Kristján
Matthíasson og Sigursveinn Magn-
ússon.
DANSINN, kvikmynd Ágústs Guð-
mundssonar, verður páskamyndin í
Pórshöfn í Færeyjum í ár. Myndin
verður sýnd með færeyskum texta
en þýðinguna gerði Ámi Dahl, rit-
höfundur og Iektor í færeysku.
Hann hefur þegar lokið þýðingunni
og hefur verið hér á landi nú í vik-
unni í þeim erindagjörðum að
leggja síðustu hönd á tæknilega hlið
verksins.
Kvikmyndin, sem er byggð á
smásögu eftir færeyska rithöfund-
inn William Heinesen, verður
frumsýnd annan í páskum í Þórs-
höfn og fer síðan einnig í önnur
kvikmyndahús í Færeyjum. Þýð-
andinn, Árni Dahl, hefur skrifað
fjölda bóka um færeysku dans-
kvæðin, auk útvarpsþátta um sama
efni. Hann aðstoðaði Ágúst Guð-
mundsson við útfærslu og leik-
stjórn dansatriðanna í kvikmynd-
inni, en eins og nafn hennar gefur
til kynna gegnir dansinn þar veiga-
miklu hlutverki. „Það var þess
vegna sem mér var boðið á frum-
sýninguna í Reykjavík í september
á síðasta ári, og þá töluðum við um
að það gæti verið skemmtilegt að
þýða myndina á færeysku og sýna
hana í Færeyjum,“ sagði Árni í
samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins í Þórshöfn.
Erlendar myndir hingað til
sýndar með dönskum textum
Fram að þessu hefur það ekki
tíðkast að þýða erlendar bíómyndir
á færeysku, en þær eru sýndar
með dönskum textum,. „Á íslandi
eru allar erlendar bíómyndir þýdd-
ar og við skulum vona að þannig
eigi það líka eftir að verða í
Færeyjum," segir hann. Árni
kveðst vona að hægt verði að fá
fjárveitingu til þess að þýða þó
ekki væri nema tíu erlendar mynd-
ir á færeysku á ári.
Sjálfur hefur hann staðið fyrir
fjáröflun til þess að standa undir
kostnaði við þýðinguna á Dansinum
og m.a. hafa nokkur minni sveitar-
félög á eyjunum styrkt verkefnið.
Árni segir þetta einkum og sér í lagi
vera byggðarlög sem séu í miklum
tengslum við Island og íslendinga,
þar sem margir íbúanna hafi farið
til Islands, unnið hér og dvalið í
lengri eða skemmri tíma og sumir
jafnvel sest að. Þessi tengsl hafi
gert það að verkum að jafnvel lítil
sveitarfélög með knöpp fjárráð hafi
lagt sinn skerf af mörkum, en
einnig hafí menningarsjóður fær-
eyska lögþingsins og landsstjórnai--
innar látið fé af hendi rakna til þess
að fjármagna þýðinguna.
Morgunblaðið/RAX
ÁGÚST Guðmundsson og Árni Dahl,
Hroka-
gikkir
dilla sér
KVIKMYlVPllt
K r i n g I u b í ó
THE LAST DAYS OF DISCO
★%
Leikstjórn og handrit: Whit Stillman.
Aðalleikarar: Kate Beckinsale, Chloe
Sevigny, Robert Sean Leonard og
Jennifer Beals. Castle Rock Ent.
1998.
KATE og Chloe leika vinkonur
sem vinna saman, leigja saman og
dansa saman næturlangt á aðal-
diskóteki borgarinnar. Samt líkar
þeim ekki sérlega vel hvorri við
aðra. Til sögunnar koma auðvitað
karlmenn og fleiri, allt háskóla-
gengið snobblið, dónalegt, hroka-
fullt og leiðinlegt. Það er erfitt að
gera skemmtilega mynd um slíkan
skríl enda tekst það ekki í þessu til-
felli.
Diskódansinn er samt dásamleg-
ur á að horfa og það hefði verið
gaman að rifja upp þessa tíma ef
maður hefði ekki þegar gert það í
öðrum nýlegum myndum. Eg sé
ekki að tíðarandinn hafi nein afger-
andi áhrif á frásögnina, það hafa
alltaf verið til og verða alltaf til leið-
inlegir hrokagikkir.
Þetta er furðulega tilgangslaus
mynd og stirðbusaleg á allan hátt.
Einstaka skondnar setningar lyfta
henni ögn á stundum, en svo dettur
hún aftur kylliflöt.
Hildur Loftsdóttir
Fréttir á Netinu
ý§> mbl.is
_ALL.TAf= GITTH\Sf\Ð AÍÝTT
Hótel Hekla sýnt
í Skandinavíu
LEIKFÉLAGINU Fljúgandi fisk-
um hefur verið boðið að sýna Ijóð-
leikinn Hótel Heklu á íslandsdög-
um í Ábo og Pero’s Teater í Stokk-
hólmi nú í mars. Leikurinn var
frumsýndur í Kaffileikhúsinu ný-
lega.
Hótel Hekla segir frá flugfreyju,
sem Þórey Sigþórsdóttir leikur,
sem þarf að kljást við „óþægilegan"
farþega, en hann er leikinn af Hin-
riki Olafssyni, á leið til útlanda.
Hótel Hekla er nokkurs konar
„ljóðleikur", enda er ljóðum fléttað
inn í textann.
Hótel Hekla er upphaflega
styrkt af norræna menningar-
sjóðnum og er leikferðin í sam-
vinnu við Svenska Teater í
Turku/Ábo og Teater Pero í Stokk-
hólmi, og styrkt af Teater og Dans
I Norden. Upphaf samvinnunnar
um sýninguna má rekja til leikferð-
ar með sýninguna „Láppstift och
Iava“ til Stokkhólms og Álandseyja
fyrir þremur árum. Sú sýning var
samsett úr einleiknum Skilaboð til
Dimmu og ljóðum á myndbandi og
var sýnd í Pero’s Teater og á lista-
hátíð í Norræna húsinu á
Álandseyjum. í framhaldi af sýn-
ingunni „Láppstift och lava“ fóru
Þórey Sigþórsdóttir og Ylva Hell-
erud af stað með hugmyndina að
Hótel Heklu. Frá upphafi var hug-
myndin sú að flytja sýninguna líka
á sænsku til að gefa skandinavísk-
um áhorfendum innsýn í það sem
væri að gerast í íslenskri nú-
tímaljóðlist, en einnig að gera til-
raunir með þessi tvö form; Ijóðið og
leikhúsið, segir í fréttatilkynningu.
Sýningar í Ábo verða 23. og 24.
mars í tengslum við Islandsdaga en
þeir standa yfir í Turku/Ábo dagana
22. til 30. mars. Meðal annarra við-
Ljósmynd/Kristín Bogadóttir
ÚR leikritinu Hótel Hekla í Kaffileikhúsinu: Þórey Sigþórsdóttir
og Hinrik Ólafsson.
burða á íslandsdögum má nefna
fyrirlestra, kvikmyndasýningar og
fleiri menningarviðburði.
Sýningar í Pero’s Teater í Stokk-
hólmi verða laugardaginn 27. mars
og sunnudaginn 28. mars. Einnig
heldur leikstjórinn, Hlín Agnars-
dóttir, fyrirlestur um íslenskt leik-
hús í tengslum við sýninguna.
Síðasta sýning á Hótel Heklu fyr-
ir leikferðina er í dag, laugardag, en
fimmtudaginn 18. mars er Hótel
Hekla sýnd á sænsku í Kaffileikhús-
inu.
Ketkrókur í Karíbahafínu
KVIKMYJVDIR
Stjörnubíó,
Laugarásbfó
„I STILL KNOW WHAT YOU DID
LAST SUMMER“*
Leikstjóri Danny Cannon. Handrits-
höfundur Tray Callaway. Kvik-
myndatökustjóri Vernon Leyton.
Tónskáld John C. Frizzell. Aðalleik-
endur Jennifer Love Hewitt, Freddie
Prinze Jr„ Brandy Norwood, Meklii
Phifer, Muse Watson, Bill Cobbs. 100
mín. Bandarisk. Columbia 1998.
HVERNIG líst ykkur á blikuna:
framhaldsmynd eftirlíkingar af
guðmávita hvað mörgum andlaus-
um eftiröpunum af unglingahrolln-
um blóðuga. Enda uppskeran eftir
því, gjörsamlega steingeld og alls
vanmáttug að gleðja áhorfand-
annn, að maður tali ekki um að
hræða hann. Það man sjálfsagt
enginn heilvita maður mynd nr. 1,
þó rámar mig í að hafa séð sömu
andlitin áður, þó ekki viss. Þau eru
hvert öðru lík, þessi dísætu fés
smástirnanna, sem prýða myndir
sem þessar. Falla síðan undan-
tekningarlítið í gleymsku eftir að
búið er að kvelja úr þeim líftóruna
í nokkrum dáðlausum B-myndum,
og nýjar gellur komnar inná
kontórinn hjá framleiðandanum.
Svo gerast kraftaverkin; ein og ein
slær í gegn. Á meðan sér maður
vonarneistann í öllum þessum fal-
legu augum...
Vinkonurnar frá því í fyrra- og
hittifyrrasumar eru nú ílestar
myrtar (á mismunandi hroðalegan
hátt), aðrar en Julie (Jennifer
Love Hewitt). Hún er hins vegar
bölvanlega haldin af martröðum.
Til að hressa uppá sálartetrið
heldur hún til Bahamaeyja ásamt
Ray sínu Bronson (Freddie Prinze
Jr.), vinkonu sinni og kærasta
hennar. Hvað haldið þið að gerist?
Heppnisdagar í sögu tómatsósu-
iðnaðarins en ólánsdagar hjá fjór-
menningunum sem upplifa sann-
kallað helvíti í sumarleyfisparadís-
inni í Karíbahafinu. Með tilheyr-
andi fellibyljum, þrumum, elding-
um og andstyggðar vatnsveðri. Og
blóðþyrstan brjálæðing með kjöt-
króka og kuta á lofti sem hann
hjakkar með á ungmennunum.
Þvílíkt fjör og gaman. Ofaná allt
annað er handritið líkast því að
vera skrifað af bekkjartossunum í
Álmstræti. Ekki má gleyma karl-
peningnum. Fyrmefndur Prinze
og nokki-ir aðrir eru, líkt og gell-
umar, valdir sökum útlitsins, ekki
hæfileikanna. Maður er nánast
feginn þegar Ketkrókur þeirra Ba-
hamaeyjamanna, fækkar í þessu
liði. Vonandi á það ekki eftir að
ganga aftur í þriðju myndinni.
Sæbjörn Valdimarsson
Sýningum
lýkur
Kjarvalsstaðir
SÝNINGU á verkum Einars Gari-
balda Eiríkssonar, Blámi, lýkur á
morgun, sunnudag. Blámi er hug-
leiðing Einars um stöðu Kjarvals
sem táknmyndar í íslensku samfé-
lagi nútímans. Á Kjai'valsstöðum
stendur yfir sýning á helstu verkum
Kjarvals: Af trönum meistarans
1946-72.
Leiðsögn er um sýningar safnsins
alla sunnudaga kl. 16.
Opið er á Kjarvalsstöðum alla
daga frá kl. 10-18.
Listasafn íslands
Sýningin Ég, Ijósmyndir hol-
lensku listakonunnar Inez van
Lamsweerde, lýkur á morgun,
sunnudag.
Myndirnar voru frumsýndar í ein-
um af kunnustu listasölum New
York-borgar í lok síðasta árs og fara
héðan til Parísar og Hamborgar.
Safnið er alla daga, nema mánu-
daga kl. 11-17.