Morgunblaðið - 13.03.1999, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
JAPÖNSK VERSLUNARKEÐJA
FÆRIR ÚT KVÍARNAR í EV
1. í MUJI fást alls kyns mun-
ir á hagstæðu verði.
2. PEYSUR, sokka, jakka,
nærföt, og buxur er ineðal
annars hægt að kaupa í
Muji.
3. UR búsáhaldadeildinni í
Soho.
4. Þetta er Muji-verslunin í
Covent Garden í London.
5. JAPÖNSKU verslunar-
mennirnir hafa lagt
áherslu á einfaldleika og
umhverfisvernd.
6. STARFSFÓLK verslunar-
innar í Covent Garden og
stfllinn er einfaldur.
7. ALLT fyrir ski-ifstofuna,
meira að segja tölvur má
kaupa í Muji.
Rækjukex,
reiðhj ól og allt
þar á milli
✓
I Muji-verslunum fæst nánast allt milli
himins og jarðar. Markmiðið er
lækkað vöruverð en í hugum margra
merkir Muji nýr lífsstíll. Hrönn
Marinósdóttir gluggaði í tímarit og
fann upplýsingar á Netinu um
þessa ágætu verslun úr austurvegi.
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson
ISLENDINGAR sem ferð-
ast hafa til London og
Parísar kannast sjálfsagt
margir hverjir við Muji,
japönsku verslunina sem
selur eigin hönnun og framleiðslu
af öllu mögulegu tagi; húsgögn,
rafmagnstæki, reiðhjól, eldhús-
áhöld, ritföng, fatnað, snyrtivörur,
jafnvel kex með rækjubragði og
tyggigúmmíi. Bara að nefna það.
Það fæst í Muji.
I Japan heita verslanirnar
Mujinishi Ryohin sem útleggst á
íslensku sem „ómerkt vara“. Á
Vesturlöndum var heitið _______
stytt í Muji en það var
árið 1991 sem fyrsta
verslunin var opnuð í
Soho-hverfinu í London. _________
Vörunar hafa fallið
vel í kramið hjá Evrópubúum og
því hyggjast Japanir færa enn
frekar út kvíarnar og opna 50 nýj-
ar verslanir í Evrópu á næstu
fimm árum. Auk þess stendur til
að auka vöruúrval í þeim verslun-
um sem fyrir eru.
Vegsemd Muji hefur vaxið ört
en ekki eru fleiri
en 19 ár síðan
fyrstu vörurnar
komu á markað í
Tókýó. Fyrst í
stað voru Muji-
vörur seldar
stórmarkaði
en til sölu
voru einungis
örfáar tegund-
ir matvöru og
búsáhöld. En
tónninn
sleginn,
Einfaldleiki,
gæði og
hagstætt verð
var
Muji-
vörur
þóttu
þá eins
og nú
bera vott
um mikil
gæði og verðið var
hagstætt.
Verslanir nú eru
um 250 talsins, flestar
í Asíu en nokkrar í
Evrópu. I London eru Muji-versl-
anirnar sjö, ein verslun er í
Manchester og sú níunda verður
Undir yfirborði draums
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
SEM andlit í stein birtist draumurinn.
Tifar, hjalar, slarkar, slær,
slítur, órast, tefur,
skrífar, smalar, þjarkar, þvær,
þýtur, Ijórast, sefiir.
(Jón Jónsson frá HvolL)
DRAUMAR gegna mikilvægu
hlutverki í lífi manns ef að er gáð.
Þeir veita innsýn í sálarlíf til skiln-
ings á eigin sjálfi. Þeir sýna fortíð
til glöggvunar á þeim þáttum, erfð-
um sem áunnum, er gera nútíðina
að því sem hún er. Þeir skyggna
nútíðina og senda meðvitund hug-
boð um næstu skref og gerðir. Þeir
fara með mann til framtíðar til út-
listunar á því hvers er að vænta og
hvers maður er megnugur.
Draumurinn lætur mann sjálfan
um að finna réttu leiðina en hann
hefur yndi af að gefa vísbendingar
um fyrmefnda þætti og leiða mann
um troðninga sem torvelt getur
verið að átta sig á hvert liggja.
Þegar draumar eru skoðaðir til
ráðningar fer maður fyrst um yfir-
borð draumsins og safnar saman
þeim sprekum tákna sem mest eru
áberandi og raðar þeim upp líkt og
ættartré með framsæknustu tákn-
in efst en þau daufari neðst, svo
tengir maður myndirnar saman og
ímyndir þeiira í eina heild og fær
þannig vegvísi eða kort til glöggv-
unar á eðli leiðarinnar. Það sem þá
kemur í Ijós er yfirlitsmynd eða
landslag draumsins sem gefur
innihaldið í skyn, þó vantar enn
nokkuð á að draumurinn skýrist en
það gerist þegar kíkt er undir
völutáknin á veginum og rýnt í
svörðinn. Að rýna í draum er líkt
og að stara á stein í náttúrunni,
eftir stund hættir steinninn að
vera steinn, hann verður að andliti,
að trölli, að álfi eða frásögn um líf
þjóðar og sögu. Steinninn öðlast
eigið líf og þú ert hluti af því lífí,
þeirri mynd sem birtist í steininum
og þeirri sögu sem myndin flytur.
Draummyndin er eins og steinn-
inn, að án skoðunar er þetta bara
einhver mynd, en um leið og farið
er undir yfirborð draumsins, lyftist
hula þess óræða af honum og hann
skýrist, verður lifandi mynd.
Draumurinn verður að ákveðinni
sögu um þig, um gerðir þínar og
innræti, hann laðar fram sannleik-
ann í lífinu og með honum kallar
þú fram svör við erfiðum spurning-
um jafnt sem léttvægum. í andliti
draumsins sérðu kosningamar í
vor, fyrra líf þitt eða veðrið næsta
vetur.
Draumur „Einnar að
pæla“
Mig dreymdi um kærastann
minn sem við skulum kalla X og
um mig sem við skulum kalla H:
Ég stóð úti á bílaplani og hélt á
innkaupapoka (eða innkaupapok-
um) í hendinni. Það var fólk í
kring en fámennt og fólkið virtist
hverfa í burtu. Ég stóð þama með
pokann/pokana í hendinni og leit-
aði að X, ég skimaði (horfði) yfir
bílaplanið en fann X ekki. Ég byrj-
aði að gráta, tárin hmndu niður
kinnar mínar og ég byrjaði að
kalla á hann: „X, X, hvar ertu? X,
X Eins og ég sagði hágrét ég og
tárin hmndu niður kinnar mínar.
En allt í einu heyrði ég einhvern
kalla og ég sneri mér við og sá þá
að það var hann X að kalla. Ég
hljóp til hans inní einhvers konar
búð, það vom svona rennihurðir.
Þegar ég var komin til hans, inní
þessa búð, kysstumst við og föðm-
uðumst. Og svo á irkinu (spjallrás-
unum) sagði hann: „H, tár þín
_______svo hélt hann áfram:
„hafa komið sambandi okkar
_________“, og enn hélt hann
áfram: „til skila.“ Svo vaknaði ég.
Ráðning
Draumurinn er eins og uppsetn-
ing á einþáttungi þar sem þú leik-
ur einleik en X er eins og einhver
óræður aðili, einhver sem er á
leiðinni en kemur ekki. Leikmynd-
in er þrískipt: bílaplanið, búðin og
irkið (spjallrásirnar). Þessi þrjú
tákn gefa í skyn fjarlægð og em
ópersónuleg. Leikmunirnir em
innkaupapokarnir, rennihurðirnar
og tölvan. Pokarnir (vömrnar í
pokanum sýna þann innri forða
sem þú hefur að gefa) em vís-
bending um hug þinn til X, renni-
hurðirnar tala um losaralegt sam-
band og tölvurnar um að hér sé