Morgunblaðið - 13.03.1999, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 13.03.1999, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Halldóra Sigur- jónsdóttir fædd- ist í Dyrhólahjá- leigu í Mýrdal 22. maí 1924. Hún lést á lieimili sínu í Vík 5. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Runólfsdóttir, f. 5. okt. 1883, d. 27. feb. 1958, og Sigurjón Runólfsson, f. 18. nóv. 1879, d. 20. júní 1976. Halldóra var þriðja í röð fjögurra systkina. Hin voru: Vilhelmína, f. 4. jan 1920, d. 24. okt. 1957; Þor- steinn, f. 23. feb. 1922, d. 16. okt. 1979; og Guðrún, f. 19. júlí 1925. Hinn 25. desember 1957 gift- ist Halldóra Einari Sigurði Kjartanssyni frá Þórisholti í Mýrdal, f. 3. mars 1925, d. 18. des. 1970. Þau eignuðust tvær dætur. Þær eru: 1) Guðrún, f. 10. jan 1957, hennar maður er Jón Erling Einarsson, f. 3. jan 1955. Börn þeirra eru: Hjördís Rut, f. 14. mars 1977, maki Jó- hann Pálmason, dóttir þeirra er Hún Halldóra mágkona okkar er farin yfir móðuna miklu. Undrun sætir hvað banamein hennar bar brátt að, en hún var ekki vön að flíka því þótt eitthvað bjátaði á, en vera kann að aðdragandinn hafi verið lengri en okkur grunaði. Við kynntumst Halldóru ekki að neinu ráði fyrr en að áliðnu ári 1956 að í ljós kom að kynni hennar við hann Sigurð bróður okkar voru þess háttar að til frekari tíðinda kynni að draga. Því fór þó fjarri að fjölskylda hennar væri okkur ókunn, enda búandi sitt hvorum megin við mýrina breiðu og blautu sem skilur Reynishverfi firá Dyr- hólahverfi. Það var árviss viburður að hann Sigurjón, faðir hennar, kom gangandi á leiðinni til Víkur. Yfir kaffibolla í eldhúsinu hafði hann frá mörgu að segja, og hvers- dagslegir atburðir tóku á sig kynjamyndir, en orðkynngi hans og frásagnargleði og áherzlur föng- uðu eyrun ungu og greyptust í vit- und okkar. Trúlega hefur henni Dóru verið nokkur vandi á höndum þegar hún á öndverðu ári 1957 stofnaði heim- ilið í Vík með honum stóra bróður okkar, eftirlæti fjölskyldunnar, sem handlék vélar, smíðatól, múr- skeiðar og hljóðfæri af þeirri list, sem honum var einum lagið, laðaði að sér menn og málleysingja, en greiðvikni glaðværð og h'fsins lystisemdir einkenndu dagfar hans. Brátt varð það öllum ljóst að hér hafði hann fundið sinn jafnoka. Heimilið á Víkurbraut var vinsæll áningarstaður, jafnt fyrir fjöl- skyldu og aðra vini, og þeir sem lengra voru að komnir áttu sér hér öruggt skjól við veitingar og góðan fagnað húsráðenda. Persónuleg, alhllða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Harpa Rún, f. 1997, Sigrún Dóra, f. 8. maí 1979, maki Barði Siguijónsson, og Einar Sigurður, f. 19. okt 1988. 2) Þorgerður, f. 24. október 1961, henn- ar maður er Jóhann Guttormur Gunn- arsson, f. 1. okt. 1959. Börn þeirra eru: Gunnar Þór, f. 16. júlí 1991, Snorri Páll, f. 14. ág. 1993, og Rúna Dís, f. 14. apríl 1997. Fyrir átti Halldóra eina dóttur, Rúnu Jónsdóttur, f. 21. sept. 1948. Faðir hennar er Jón Sölvi Helgason. Maður Rúnu er Jón Þór Ragnarsson, f. 27. des. 1949. Þeirra börn eru: Eyjólfur ÓIi, f. 3. apríl 1970, maki Elsa Lind Guðmundsdóttir, þau eiga tvö börn: Onnu Sóleyju, f. 1995, og Eyjólf Snæ, f. 1998. Með Ing- veldi B. Jónsdóttur á Eyjólfur ÓIi soninn Jón Þór, f. 1991. Útför Halldóru fer fram frá Vfkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Jarðsett verður í Reyniskirkjugarði. Sigurður stundaði vörubílaþjón- ustu og var með þeim fyrstu að fá bfl með lyfti- og moksturstækjum, sem mikið hagræði var að. Hall- dóra vann á Hótelinu hjá þeim at- hafnahjónum Brandi og Guðrúnu. Svo komu sólargeislarnir tveir, þær Guðrún og Þorgerður. Blóma- skeið hjá litlu fjölskyldunni fór í hönd. A útmánuðum 1964 dró blikur á loft, bróðir okkar hóf að kenna þess sjúkdóms, sem varð honum að falli langt um aldur fram rétt fyrir jól 1970. Við fráfall Sigurðar var skarð höggvið í fjölskylduna, uppeldi dætranna, Guðrúnar 14 ára og Þor- gerðar 9 ára, hvfldi á herðum hús- móðurinnar. Halldóra stóð nú ein í annað sinn, en Rúna dóttir hennar af fyrra sambandi var áður flutt og sá sér farborða. I hönd fór erfiður tími og reyndi þá mjög á dugnað hennar. Hér naut hún vináttu nágranna, vina og frændfólks, sem allt átti henni gott að gjalda. Hún sinnti þeim verk- efnum, sem til féllu við afgreiðslu og síðar á prjónastofu, lærði að aka bifreið og komst allra sinna ferða á Skodabílnum Z-135 um götur Vík- ur með nokkru stolti, sem gerði henni kleift að rækja tengsl við ættingja og vini í Mýrdalnum, hún hélt sínu striki. Við minnumst notalegra stunda hjá henni Dóru, sem tók við gest- um sem fyrr með hlýju og gestrisni og þann litla bakstuðning sem við reyndum að veita endurgalt hún margfalt og sinnti erindum okkar af einstakri einurð og harðfylgi. Nú hefur sól brugðið sumri og hljóðnað hefur í húsinu, sem nýttist henni svo vel í bh'ðu sem stríðu um fjörutíu ára skeið. Hún Björg sér á bak góðum fé- laga, en gagnkvæm hollusta og Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri 8 HBi blómaverkstæði I | JpiNNAm | Skólavörðustíg 1 2, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. hjálpsemi markaði samband þeirra og annarra góðra nágranna. Við minnumst Halldóru með hlý- hug og söknuði og vottum þeim Rúnu, Guðrúnu og Þorgerði og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Systkinin frá Þórisholti. Föstudagsmorguninn 5. mars sl. hafði illvígur sjúkdómur yfirhönd- ina þegar Halldóra Siguijónsdótt- ir, Dóra eins og flestir kölluðu hana, lést eftir mjög stutt og óvænt veikindastríð. Ekki höfðum við grun um að þetta myndi gerast svona hratt sem raun bar vitni. Siggi frændi Dóra og dætur hennar voru alltaf í mínum huga hluti af minni fjölskyldu frá því að ég man eftir mér í Þórisholti. Mik- ill samgangur var milh fjölskyldn- anna aha tíð. En nú fækkar í fjöl- skyldunni við fráfall Dóru. Hún var mikfll dugnaðarforkur og alveg var sama hvað hún tók sér fyrir hendur. Bakstur, matargerð, saumaskapur, hekl, dúkastrekk- ingar og hvaðeina sem til lagðist lék í höndunum á henni og öllu skilaði hún ákaflega myndarlega. Einstaklega fallegt handbragð var á öllum hlutum þrátt fyrir það að hún var mjög skjálfhent og þá sér- staklega í seinni tíð. Hún var líka alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd ef hún vissi um einhvem sem vant- aði hjálp og gekk þar skörulega fram. Mín kynni af Dóru voru alla tíð afar góð og áttum við margar góð- ar samverustundir yfir happdrætt- inu á sínum tíma og í öllum fjöl- skyldusamsætunum sem helst ekki voru haldin nema Dóra Gunnsa og Dedda væru líka. Lífið brosti ekki alltaf við Dóru en hún brosti oftast við því hvað sem á gekk. Sigurður eiginmaður hennar lést langt fyrir aldur fram árið 1970 og sjálf fékk hún krabba- mein sem tók töluverðan tíma að yfirvinna en með þrautseigju og einbeitni tókst henni það. Hún ól dætur sínar upp og vann sjálf úti frá heimilinu, á hótelinu, í kaupfélaginu og síðast í Víkur- prjón. Heimilið bar alla tíð vott um myndarskap og í minningunni sé ég fyrir mér heimili sem var hlý- legt og þægilegt. Bflpróf tók hún eftir að Sigurður maðurinn hennar dó og var það stórt skref í sjálfs- bjargarviðleitninni að komast um á eigin bíl. En sjálfsbjargarviðleitni var hennar mottó. Dóra var ákaflega félagslynd og tók þátt í því sem hún gat við kom- ið. Hún var dugleg að sækja þær samkomur sem til féllu hér í Vík- inni. Hún var m.a. félagi í Kvenfé- lagi Hvammshrepps um árabil og starfaði þar fram á síðasta dag. Dóra var einn af stofnendum Sam- herja, félags eldri borgara í Mýr- dalshreppi og Austur-Eyjafjalla- hreppi og starfaði þar af miklum áhuga. Einnig var hún um árabil umboðsmaður happdrættis SIBS. Mig langar að þakka Dóru sam- fylgdina og tryggðina í gegnum ár- in og sendi þeim Rúnu, Gunnsu, Deddu og fjölskyldum þeirra mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Þorgerður Einarsdóttir yngri. Mikið er nú erfitt að þurfa að kveðja þig, elsku amma. Mér finnst svo ósköp sárt að þú sért farin frá mér en svona er h'fið, eins óút- reiknanlegt og hugsast getur. Sem betur fer þurftir þú ekki að þjást lengi í baráttunni við sjúkdóminn sem tekur svo marga frá okkur. Mér fannst alltaf svo notalegt að r Blórnabúðin > Ga^Sskom . v/ í-DSsvogskirUjMgQrð . Símis 554 0500 y/ koma til þín á Víkurbrautina, þú varst alltaf svo spræk og vildir alltaf hafa svolítið mikið fyrir manni, hvort sem maður var að stoppa stutt eða lengi. Þú eldaðir líka svo góðan mat og bragðaðist sá matur hvergi eins vel og hjá ömmu Dóru. Já, það er margs að minnast og mikils að sakna, amma var kona sem vildi helst vera með í öllu og sótti allar samkomur hér í Vfldnni og sótti t.d. næstum alla tónleika því hún hafði mikinn áhuga á söng og tónlist og svo fór hún líka á spilakvöld o.fl. Henni þótti afar vænt um að heyra mig spfla á flaut- una mína og ætla ég að spila fyrir þig í dag, amma mín, í síðasta skiptið. Það var líka mikið um að vera þegar von var á gestum á Vík- urbrautina, allt þurfti að vera tipp topp og heitur matur á pönnunni eða kökur og kaffi og þá voru randalínumar hennar ömmu í upp- áhaldi því þær voru hvergi eins góðar og hjá henni. Amma var hka svo dugleg, setti niður sínar kartöflur, gerði sitt slátur, sitt saltkjöt, hangikjöt og svo mætti lengi telja. Svo var nú Skódinn hennar stór partur af henni eða bróðir hennar mömmu eins og var oft grínast með og keyrði hún hann næstum fram á síðasta dag. Amma var líka stund- vís, einum of fannst sumum en hún vildi aldrei vera sein eða missa af einhverju því hún vildi líka fylgjast vel með. Það gekk líka mikið á rétt fyrir hádegi því þá var von á Gunnu og þá var eldað og mikil tilhlökkun í ömmu að fá hana til sín í mat og te og var mikið drukkið af því og var amma orðin hálfgerð áhugamann- eskja um te. Amma var hjá okkur á Bakka- brautinni um öll jól og fannst henni ekki leiðinlegt að sjá forvitnina skína út úr augum okkar systkin- anna er kom að því að opna pakk- ana og gerði hún oft grín að því og passaði sig á því að sýna okkur ekki pakkana frá sér fyrir jólin til að halda spennunni og stríða okk- ur. Þótt bamabamahópurinn hafi verið á víð og dreif vildi amma líka alltaf fylgjast með okkur, hvort okkur liði ekki vel og hvað á daga okkar hafði drifið og eftir að ég flutti í Víkina aftur var hún amma nú heldur betur ánægð, henni fannst hún bara aldrei hafa séð mig þegar ég bjó í Reykjavíkinni og töl- uðumst við mikið við og kallaði hún oft á mig úti á götu bara svona til að spyrja mann frétta og helst gefa manni eitthvað og maður endaði oftast á því að stoppa miklu lengur en maður ætlaði sér. Ommu þótti líka svo gaman þeg- ar Gugga kom í Víkina til að klippa og þá var líka dekrað við hana og passað upp á að öllum liði sem best. Það var ekki lítið hlegið oft þegar Gugga var að klippa okkur systurnar og við létum náttúrulega eins og kjánar eða eins og okkiu- einum er lagið og þegar manni fannst hlutimir kannski ganga of langt svona fyrir framan ömmu taldi hún sig nú vera vana ruglinu í okkur og var alveg hætt að hneykslast heldur hló bara með okkur. Eitt áhugamálið hennar var nú líka Leiðarljós, var hún alveg ónýt ef hún missti af þætti og voru mál- in í þeim þætti oft rædd yfir kók- glasi á Víkurbrautinni. Eins og fyrr sagði var hún amma mín svo dugleg og dáðust allir að henni því hún hafði svo mikinn skjálfta í höndum en það aftraði henni ekki frá því að sauma, prjóna dúka eða bara hvað sem var og maður hugsaði oft út í það hvemig þetta væri hægt svona vel en hún amma gerði það sem hana langaði til enda þótt það tæki langan tíma og sýndi hún óþrjótandi þolinmæði við hlutina. Amma átti líka fyrir utan fjöl- skylduna marga vini sem reyndust henni svo óskaplega vel eins og hana Gunnu og eigum við henni svo óskaplega mikið að þakka. Amma HALLDORA SIGURJÓNSDÓTTIR talaði mikið um hann Ella sinn sem hún hélt mikið upp á og við syst- umar kölluðum Ella hennar ömmu. Það var líka mikil tilhlökkun hjá henni á Þorláksmessu þegar von var á Auðberti og Önnu í kaffi og koníak sem var fastur liður á hverju ári og þá þorði amma varla að fara úr húsi svo hún mundi ör- ugglega ekki missa af þeim. Ekki má ég gleyma henni Björgu vestrí eins og hún var kölluð hjá ömmu en þær vora miklir mátar og bröll- uðu margt og spjölluðu eflaust mikið enda búnar að vera nágrann- ar í rúm 40 ár. Já, svona mætti lengi telja, amma átti marga vini og félaga sem styttu henni stundimar því það er eflaust erfitt og einmanalegt að vera svona lengi einn því það er svo langt síðan hann afi dó frá henni og er það aðdáunarvert að hún hafi getað spjarað sig svona vel í öll þessi ár ein. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hðnd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr.Pét.) Ég gæti skrifað endalaust, amma mín, því ég var svo stolt af þér og mér þykir svo ósköp vænt um þig. Ég veit að það hafa verið ánægjulegir endurfúndirnir hjá þér og afa. Mér finnst bara svo sárt að geta ekki farið til þín lengur og allt verði eins og áður. En ég veit að þér líður svo vel núna, þú varst svo veik, elsku amma mín, og það var svo erfitt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Minningin um þig, amma mín, lifir í okkur öllum. Guð geymi þig, amma mín. Þín Sigrún Dóra. Elsku amma. Það er ekki langt síðan þú varst flutt á sjúkrahúsið og pabbi og mamma sögðu okkur að þú værir mikið veik. Við vonuðumst samt til að þér myndi batna en nú ert þú svo snögglega farin, komin tfl Guðs þar sem þér mun öragglega líða vel. Nú ert þú hjá Sigga afa sem við kynntumst aldrei. Nú getur þú sagt honum frá okkur, hvað okkur þykir vænt um ykkur þó að þið séuð hjá Guði. Elsku amma Dóra, við munum alltaf muna eftir því hvað þú varst góð við okkur, þú gafst okkur alltaf páskaegg og svo margar fallegar gjafir. Þú bjóst til bestu flatkökur í heimi og kæfan þín var líka sú besta í heimi. Við söknum þess að geta ekki heimsótt þig í Víkina og gist í kjallaranum hjá þér. Þú fórst alltaf með okkur í gönguferðir til þess að skoða hjólabátana. Það gerði enginn annar. Saknaðarkveðjur frá mömmu og pabba með þökkum fyrir allt. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Gunnar Þór, Snorri Páll og Rúna Dís. Nú er komið að kveðjustund. Ekki hvarflaði að okkur, þegar við heimsóttum Dóru á sjúkrahúsið nýlega, að þetta yrði í síðasta sinn sem við nytum návistar hennar. Kynni okkar hófust þegar hún og Siggi fluttu í hús sambyggt æskuheimfli okkar í Vík í Mýrdal. Mikill samgangur var á milli fjöl- skyldnanna og trítluðum við systur yfir til þeirra og gerðum okkur heimakomnar. Það var alveg sama hvenær við komum, alltaf vorum við velkomnar og tekið á móti okk-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.