Morgunblaðið - 13.03.1999, Side 86

Morgunblaðið - 13.03.1999, Side 86
86 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Vor- og sumartískan í hárklippingum Heilbrigt hár og frjálslegt útlit HARÐARI og beinni línur í millisíddinni. LÉTT og frjálsleg herraklipping. DÚDDI og Elsa Haraldsdóttir hárgreiðslumeistarar eru ný- komin frá Frakklandi þar sem þau voru á sýningu Haute Coiffure Frangaise á sumarlín- unni í hárklippingum og litun. „Þessi sýning er í samstarfi við tískuhúsin og það er ekki verið að kynna eða selja hárvörur um leið. Það er bara tískan sem ræður,“ segir Dúddi. „Allar síddir ganga í suinar, það fer bara eftir persónuleika hvers og eins,“ segir Dúddi og bætir við að síðari klippingarn- ar og þær stuttu hafi meiri mýkt, séu kvenlegri en þær millisíðu sem séu harðari og beinni. „Síðan er stutta klipp- ingin með mjúkum og róman- tiskum línum. Það er algengt í Frakklandi að hafa toppinn síð- an og þetta er mjög skemmtileg klipping. Herraklippingin er mjög skemmtileg að mínu mati. Þar er sett Iétt lyfting ofan á hárið og það er haft síðara en í mörgum öðrum herraklipping- um. En heildarsvipurinn er mjög skemmtilegur og frjáls- legur. En karlmenn í Suður- Evrópu hafa yfirleitt ekki jafn stutt hár og við sem norðar er- um.“ - En hvað með svokallaða „samfaraklippingu“ þar sem hárið er úfið í hnakkanum. Er hún á undanhaldi? „Hún er ennþá mjög vinsæl en mun mildast á næstunni. Hárið verður ekki haft jafn úf- ið í hnakkanum. Með sumrinu koma aðrar áherslur. En þessi nýja lína er mjög dæmigerð frönsk lína og það hefur verið svolítið áberandi hérna heima að þegar einhver ný Iína kem- ur og verður vinsæl þá fá allir sér sömu klippinguna. Fjöl- breytnin mætti vera meiri bæði í hár- og fatatískunni eins og virðist vera t.d. í Frakklandi. Þessi vor- og sumarlína Haute Coiffúre Fran^aise er meira til viðmiðunar en það eina sem gengur. Maður styðst við þess- ar línur en síðan er hægt að út- færa eftir eigin höfði.“ - En hvaða litir eru vinsæl- astir í sumar? „Það eru áfram Ijósir litir, en ekki eins hvítir og hafa verið, meiri vanillutónn í þeim. Síðan eru rauðbrúnir áfram vinsælir. Það eru einnig minni andstæð- ur í lituninni í þessari línu, en þær koma kannski aftur með haustinu. En aðaláherslan er á heilbrigt útlit, stutt hár og frjálslegt. Það fylgir sumrinu þegar allir eru úti við að hafa hárið sportlegra og sem eðlileg- ast.“ 9{ætur£aíinn Smiðjiwegi 14, ‘Kópavogisími 587 6080 í kvöld leika hinir frábæru Stefán P. og Pétur Opið frá kl. 22—3 Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 Næturgalinn þar sem stuðið er og alltaf lifandi tónlist SÍÐARA hár þar sem niýktin ræður ríkjum. STUTT hár með síðum toppi og mjúkum Iínuni. Siílnasalur Radisson SAS Saga Hotel Reykjavík Klass leikurfyrirdansi frákl. 23.30 íkvöld. Söngvarar: Sigrún Eva Ármannsdóttir og Reynir Guðmundsson Arna Þorsteinsdóttir og Stefán Jökulsson slá á léttari nölur á Mímisbar Gaman á Alþingi ALVEG er eins og ríkisrásin hafi verið nokkuð lengi að undirbúa hugarfar fólks fyrir útsendingu frá Alþingi á mánudagskvöldið. Vik- una á undan hafði rásin sýnt Ókindina II, Fúll á móti, Hættuleg kynni og Nú eða aldrei á sunnu- dag, eins og um væri að ræða síð- ustu forvöð til að koma vitinu fyrir þingheim í aðfara kosninga. Sjald- an hefur annað eins rusk orðið í flokkaskipulagi landsins og núna, þegar jafnvel erkiféndur samein- ast og helsti strigakjaftur vinstri- mennskunnar skil- ur skútuna eftir í höndum kvenna, sem komnar eru úr bameign, en berj- ast samt ákaflega fyrir löngum fæðingarorlofum svo vinnuveitend- ur hræðast fátt meir en starfs- krafta sem verða ófrískir einu sinni á ári eða svo, eins og skeði stundum í dentid áður en getnað- arvarnir voru uppteknar sem námsefni í skólum. Sjónvarpsumræður í þinginu voru ekki verri skemmtidagskrá en það „bloody murder" sem sjón- varpsrásir sýna okkur daglega úr henni Ameríku. I megindráttum voru ræðuhöldin sama þusið og áð- ur með einstaka upphrópunar- kenndum tilþrifum. Þó máttu menn sakna útskýringa á hinni snjöllu tilraun til vegsemdar at- vinnulífínu í landinu með uppbygg- ingu kvikmyndaiðnaðar og því sem er eftirtektarverðara; útflutningi á poppi eins og tilkynnt hefur verið. Eru þá tilkallaðir menningarvitar á borð við frægan poppara, sem nýlega lagði tvær hæðir við Laugaveg undir popp og nokkurt landrými við Garðabæ og er hinn eini sanni poppari landsins með nýleg ítök í Framsóknarflokknum, sem virðist vera að poppa sig nokkuð. Eftirsjá var að Svavari Gests- syni í skemmtidagskrá Alþingis á mánudagskvöld. Þegar hann lítur yfír sviðið við brottför eftir tuttugu ár á þingi mætti hann álíta að hin eftirsótta „Snorrabúð", sem var vettvangur margrar rimmu á meðan flokks- bræður hans stóðu í Finnastríðinu; á meðan stóð í stefnuskrá að vinna skyldi landið með byltingu; á með- an bandalagið stóð við hlið nasista í byrjun stríðs samkvæmt mömmuleiknum við Sovét meðan á skiptingu Póllands stóð, væri ekki orðin annað en stekkur. Svavar kvaddi þingið vh'ðulega og óskaði þess að það nyti meiri virðingar. Hann verður virðulegur sendi- herra á meðan Sovét-ísland bíður síns tíma. Önnur kveðjuathöfn átti sér stað við lok skemmtidagskrárinnar í þinginu, en það var þegar skrítinn málsvari Kvennalista tók hatt sinn og staf og gekk út til vinstri, eins og þeir sögðu í Hafnarfirði í gamla daga. Ræða hennar var um hana sjálfa, að mestu leyti, líklega fyrir „file“ Kvennalistans, en kom eng- um öðrum við. Þetta mun verða talin með skrítnari ræðum á Al- þingi, þegar frá eru taldar rökræð- ur með eða á móti því hvort drepa eigi landbúnaðinn eða láta hann lifa. Síðasti þingmaður Kvennalist- ans virðist samkvæmt eigin orðum hafa lent á milli þilja í Alþingishús- inu. Einkennilegt hugmyndaflug fylgir oft kvikmyndagerð og ganga Bandaríkjamenn þai- fremsth- í vit- leysunni. Þeir hafa lengi verið mjög uppteknir af grun um líf á öðrum stjörnum. Allt frá því að Or- son Welles gerði þjóðina hálfvit- lausa úr hræðslu með útvai-psþætti um innrás frá Mars hafa þeir fönd- rað við að búa út alls konar fyrir- bæri, sem þeir nefna verur frá öðr- um hnöttum. Hér á landi er trúin aftur á móti hrein og tær, enda reiknað með að verumar stigi út úr bláum himni yfíi' hvítum jökul- skalla. Sýn sýndi Ófreskjur II á föstudagskvöld og var þar um nokkuð skemmtilegar tæknibrellur að ræða. Benti það til þess að tæknin væri lengra komin en geim- vemrnar og má svo vera enn um hríð. Vert er að taka fram undir lokin, að Enn ein stöðin var á laug- ardagskvöld í fínu formi og virðist ekki hafa skaðast á tölvutrippinu. Fyndni þeirra er enn sem fyrr oft og tíðum alveg óborganleg. Indriði G. Þorsteinsson SJONVARPA LAUGARDEGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.