Skírnir - 01.01.1907, Blaðsíða 31
Darwinskenning og framþróunarkenning.
31
fræðistákna þeirra sem eðlisfræðingar og rúmfræðingar
hafa hugsað upp og hugsunarhátturinn sem þau frá barn-
æsku innræta flestum vísindamönnum hafa verið svo rik
í sessi enn í dag, að menn hafa ekki þózt getað skapað
stærðfræðilega efnafræði í likingu við stærðfræðilega eðlis-
fræði nema með því að rannsaka sundurleysingar efnanna
og ganga fram hjá aðalúrlausnarefninu, en það er efna-
samruninn.
A hinn bóginn hafa áhugamál og hleypidómar hinnar
sigrandi borgarastéttar í lok 18. aldar og byrjun 19. aldar
ekki síður stuðlað að því að festa hugmyndina um sam-
felda framþróun i hugum manna. Borgarastéttin, sem
óttaðist snöggar breytingar, byltingar, gjörðist íhaldssöm
og hóf þær skoðanir sem stéttarhagsmunirnir blésu henni
í brjóst upp í veldi óyggjandi sanninda; hún varp skugga
hleypidóma sinna yfir alheiminn sjálfan og lét hátíðlega í
ljósi, að í mannlífinu og náttúrunni sjálfri væru þær einar
breytingar til frambúðar er yrðu hægt og smám saman.
Ahrifin sem félagshugsjónir borgarastéttarinnar hafa haft
á líffræðiskenningarnar, eru augljós um mikilhæfustu and-
ans skörunga. Það má t. d. sjá að óbeit burgeissins á
óreglu og byltingum hefir átt drjúgan þátt í því að festa
huga Goethes við þessa kenningu um samfeldar breyt-
ingar, sem leiðir hann til að taka kenningar Neptuninga
fram yfir kenningu Plútoninga og að leita að milliliðum,
svo að hægt væri að skipa myndum dýra og jurta í
óslitnar raðir. Sérstaklega væri það auðvelt að tilfæra
sams konar dæmi frá Englandi; eg læt mér nægja að
minna á Spencer. Og trúin á það að breytingar félags-
lífsins, og þá jafnframt allar aðrar breytingar, væru sam-
feldar, var hvergi almennari en í hinu andlega umhverfi
er Lyell og Darwin uxu upp í.
Hvort sem nú Darwinskenningin er eða er ekki annað
en glæsilegt samsafn rangra skoðana, þá má ef til vill
gjöra sér þessa grein fyrir uppruna hennar. Hins vegar
er það ósannað enn, að hún sé ekki annað en áhrifamesta
skáldsaga vísindanna. Og hvernig sem fer, þá er það'