Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1909, Blaðsíða 10

Skírnir - 01.01.1909, Blaðsíða 10
10 Skapstórar konur. Ofan á þetta bætast eftirköstin eftir þjófnaðinn í Kirkjubæ. Gunnar kemur heim af þingi með fjölda manns. Hallgerður ber mat á borð, ost og smjör. Gunnar veit ekki slíks matar von, og spyr, hvaðan hann sé kominn. Hallgerður færist undan svöi'um og segir það ekki karla að annast um matreiðu. Gunnar reiðist, segir það ilt, ef hann sé þjófsnautur og lýstur hana kinnhest. Hún verður að bera matinn af borðinu aftur og koma með annan mat. Þessi mikla smán er henni gerð í viður vist margra manna. Þann kinnhest kveðst hún skyldu muna og launa, ef hún mætti. Hún fyrirgefur hann aldrei. Frá þeirri stund heíir hún vafalaust hatað mann sinn, og sennilega aldrei gleymt hatrinu nokkurt augnablik. Sjö árum síðar, eða þar um bil, gefst henni kostur á að launa kinnhestinn. Gunnar er orðinn sekur, hefir verið dæmdur til utanfarar og er réttdræpur óvinum sinum, ef hann legst þá för undir höfuð. Hann getur ekki slitið sig burt frá landinu, vill heldur leggja út í nokkurn veginn vísan dauðann. Og nú hafa óvinir hans sótt hann heim með ofurefli liðs. Hann er einn til varnar. Bogi hans er það vopnið, sem hann fær bezt við komið. En boga- strengurinn hefir verið höggvinn sundur fyrir honum. Hallgerður heldur enn hárinu mikla og fagra, þó að hún sé orðin nokkuð roskin kona. Gunnar segir þá við hana: »Fá mér leppa tvá ór hári þínu ok snúið þit móðir mín saman til bogastrengs mér«. »Liggr þér nakkvat við?« segir hún. »Líf mitt liggr við«, segir hann, »því at þeir munu mik aldri fá sóttan, meðan ek kem boganum við«. »Þá skal ek nú«, segir hún«, »muna þér kinnhestinn; ok hirði ek aldri, hvárt þú ver þik lengr eða skemr«. »Hefir hverr til síns ágætis nakkvat«, segir Gunnar, »ok skal þik þessa eigi lengi biðja«. Að nokkurri stund liðinni er hann drepinn eftir frábæra vörn. Hallgerður heíir þá komið fram hefnd sinni, og það greinilegar, en hún hefir að líkindum gert sér nokkura von um. En hverju er hún nær? Er hún nokkuð sælli kona eftir en áður? Því fer svo fjarri, að svo virðist,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.