Skírnir - 01.01.1909, Síða 35
Ur ferðasögu.
35
asta leiðin sem hann þóttist sjá, er hann ætlaði sér að lýsa í
hinu mikla verki, sem að mestu var óritað þegar andi hans
iamaðist; og er síður furða þó að hann sé mjög misskilinn þar
sem hann entist ekki tii að ljúka við sjálft aðalritið, sem átti
að verða. En mörg drög eru til þessa aðalverks í ritum hans,
eða réttara væri ef til vill að segja: rit hans eru öll drög til
þess.
Nietzscbe hefir eigi aðeins til síns ágætis frumsæi og >ið-
sæi, heldur einnig frábæra málsnild; aldrei hefir sennilega óbundin
þýzka verið rituð eins og Nietzsche gerir: aðdáanlegt er hvernig
hann notar djúpýðgi þýzkunnar og kemur hún úr hans höndum
og huga ennþá djúpúðgara mál, en hann tók við henni.
Hversu langt skyldi þess að bíða, að íslenzka, sem er svo
miklu hljómfegurra mál en þýzka, og engu ógöfugra, verður
rituð einsog henni er samboðið, eitthvað líkt því sem Nietzsche
ritaði þýzku. Gaman væri að geta litið upp þegar islenzk menn-
ing verður komin á það stig. En þess mun sennilega langt að
bíða, þó að vér vonum að svo verði.
Eitt af ritum Nietzsche er stundum nefnt biblía fyrir frjálsa
anda, og virðist það ekki allskostar heppilegt. »Frjálsir andar«
þekkja engar biblíur. Hversu mjög sem þeir undrast þá speki
og snild sem ein bók getur borið vott um, þá trúa þeir ekki
á hana. Enda var óskeikulleika-hugmyndin Nietzsche sjálfum
fjarlæg.
En vegna þess að rit þessa mikla manns eru til, þá kemst
næsti skyldur andi lengra en hann, án þeirra, mundi gert hafa.
Þann stuðning, sem sjálfur Nietzsche hafði af verðandispekinni,
er lauslega drepið á hér að framan; og ekki hefði hann komist
jafnlangt og hann gerði í ritsnild, ef ekki Lessing og Goethe,
Schopenhauer og Heine, hefðu verið á undan honum og skapað
þann jarðveg, sem listgáfa hans þróaðist í, svo að hún gat náð
sinni háu hæð.
Verður manni hér að minnast þess, hversu mjög ættgöfgi
í ritsnild hefir vantað hjá oss úr þvi sögunum lýkur; hversu
margt hefir stuðlað að því, að snillingar vorir hafa aldrei getað
náð sinni fullu hæð; hvernig þeir minna á bjarkirnar íslenzku,
3*