Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1909, Side 49

Skírnir - 01.01.1909, Side 49
Yistaskifti 49 Eg fór að gráta. Eg fann, að eg raundi hafa verið i þeim hópnum, og að á almennum bændafundi mundi hafa verið farið um mig smánarorðum. — Já-já? Hverjir voru þá þessir verstu? sagði Þor- gerður. Henni var, auðheyrt, farið að sárleiðast, hvað tregt gekk að toga út úr honum fréttirnar. — Þeir, sem menn eru verstir við, sagði Jón. . . . Vertu ekki að gráta, Steini. Þú verður ekki drepinn. Það var vitanlega huggun. Samt grét eg enn hærra. — Hvað ertu að öskra þetta, Steini? sagði Þorgerður. Ekki þarftu að vera hræddur um, að þú hafir verið á neinu undirhoði. Eg læt þig aldrei fara. Eg hefi marg- sagt það. Nú skildi eg, að undirboð stæði eitthvað í sambandi við vistaskifti. Og að vistaskifta yrði mér aldrei auðið. Hg hélt áfram að gráta. — Hvenær hefirðu sagt það? sagði Jón. — Er eg ekki nýbúin að segja, að eg hafi margsagt það ? Og líklegast ræð eg s v o litlu. Nú stóð Jón upp og fór í vasann á treyjunni sinni; hún hékk uppi yfir höfðagaflinum á rúminu hans. Hann tók þar upp pelaglas sitt, saup á því ósleitilega, stakk því niður aftur, settist á rúmið, hvesti augun á Þorgerði og var harðneskjulegur í málrómnum: — Ekki er það nú víst, sagði hann. Mér hnykti svo við, að eg hætti að gráta. — Hver ætli ráði því? . . . Þ ú? sagði Þorgerður. Og lotningin fyrir eiginmanni hennar var ekki sem auðheyrðust í rómnum. — Hvað segirðu um sveitarstjórnina? sagði Jón . . . Ólafur á Grili vildi fá hann. — Fyrir hvað ? sagði Þorgerður. — Sama og þú. — Ekki fara þeir þá að færa hann til. — Finnur á Hóli vildi fá hann. — Fyrir hvað? — Tiu krónum minna. 4

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.