Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1909, Side 69

Skírnir - 01.01.1909, Side 69
Kvenréttindahreyfingin í Ameríku. 69 réttindakröfunnar. Þær bundu með sér félagsskap og vináttu, sem hélzt meðan þær lifðu báðar. Eftir þetta voru þær óaðskiljanlegar í kvenréttinda- baráttunni urn 40 ár. Þeim bar aldrei á milli opinberlega og þær bættu hvor aðra upp. Súsanna stjórnaði og skip- aði fyrir um alla framgöngu; hún útvegaði fundarstaði, sendi út auglýsingar, gerði alla sanminga, og sá um út- vegun peninganna, þegar í harðbakkana sló. Hún var allra kvenna þrautseigust, einbeittust og hagsýnust. Orð- tak hennar var: »Failure is impossible.« »Ósigur er ómögulegur«. Trú hennar á málefni því, sem hún barðist fyrir meira en heilan mannsaldur, var óbilandi. Hún starfaði ekki einungis í Massachusettsríkinu, þar sem hún var borin og barnfædd, heldur var varla sá smábær til í öllum Bandaríkjunum, sem hún hafði ekki ferðast um, og haldið fyrirlestra í um kvenréttindamálið. Það varð henni fyrir öllu í lífinu, hennar einasta hugsjón, að sjá konurn- ar ganga jafnfrjálsar að atvinnu og embættum, úti og inni, á heimilunum og á löggjafarþingunum, eins og karl- mennina. Og frá Ameríku hefir hún breitt kvenréttinda- hugsjónina út yfir takmörk Ameríku, til allra siðaðra landa, með Allsherjarkvenréttindasambandinu, sem boðað var til í Washington 1902. Mrs. Stanton, sem þekkir hana allra manna bezt, hefir lýst henni á þessa leið: »Hún hefir stjórnað og stýrt kvenréttindahreyfingunni meira en 50 ár, og ferðast um þvert og endilangt alt landið. Hvar sem minstu lík- indi voru til að vinna mætti kvennamálunum eitthvert gagn, þangað var Súsanna komin. Aldrei lét hún ósigr- ana hræða sig frá því að byrja á nýjan leik. Við næsta tækifæri var hún komin af stað, með sama dugnaði og áður. Hún er fljót og einbeitt í kappræðunum, ætíð orð- heppin og róleg, og verður aldrei ráðafátt.----------Hún hefir ætíð verið ástúðleg dóttir og systir, og tryggur vin- ur vina sinua.-------Eg get sagt með sönnu, -að hún er hreinskilnasti, hugrakkasti og ósérplægnasti maður, sem eg hefi þekt. Og hefi eg þó verið meira og minna sam-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.