Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Síða 62
62
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ekki hið sama. I klukknaportinu eru engar þiljur, sem spyrna stöf-
unum út, en hér er skor'ðun stafsins aðalatriði. Þess vegna eru hökin
á syllunni báðum megin við stöpul, reyndar einnig á neðri brún henn-
ar. Til þess að hak þetta hafi gott hald, er nauðsynlegt að framlengja
sylluna út úr stafnum það mikið, að ekki klofni útúr. Hér er um tækni-
lega nauðsyn að ræða, og skyldleikinn fer ekki milli mála. Hins vegar
hefur hinn upprunalegi tilgangur gleymzt hér smátt og smátt og
sylla út úr stafnvegg orðið stílkækur, samanber bænhúsið í Gröf,
skemmur á Breið í Lýtingsstaðahreppi, Ási í Hegranesi, Ási í Fellum
og anddyraportið á Stóru-Ökrum.
Fyrir ö'ðru fornu minni vottar, það er hallinn á framstöplunum,
sem minnir óneitanlega á gerð fornra kirkjustöpla í Noregi og Dan-
mörku, t. d. klukknahúsið við Borgundarkirkju. Halli þessi hefur
líka sína tæknilegu skýringu, hann hefur verið til að styrkja klukkna-
húsið gegn því mikla kasti, sem á klukkurnar kom við hringingu.
Hins vegar virðist hallinn á klukknaportsstöfunum á Möðruvöllum
ekki gegna þessu hlutverki lengur, því að klukkurnar eru þann veg
staðsettar, að slátturinn fer í þveröfuga stefnu við það, sem búast
hefði mátt við af halla stöplanna að dæma. Hér er því eitt minnið
í viðbót, sem glatað hefur upprunalegum tilgangi, en þó nógu greini-
legt til þess að benda á ættarmót.
Af kirkjustól Möðruvallakirkju sést, að klukknaportið er reist
1781. Ekki er hægt að sjá af eldri heimildum, að stöpull hafi staðið
þar fyrir, þó vekur orðalag vísitazíunnar 1776 grun um, að svo kunni
að hafa verið: „framundan kirkjudyrum hefur proprietarius látið
hlaða að nýju klukknaports kampa“. Spurningin er, hvort orðalagið
„áð nýju“ þýði nýja kampa eða, að fyrir hafi verið aðrir, sem endur-
nýjaðir eru. Um það get ég ekki dæmt, en hér hefur í raun og veru
sögu þessa mannvirkis. Fimm ár standa kamparnir auðir, en þá lætur
proprietarius Sigurður Eiríksson til skarar skríða, og 16. október
1781 fær portið svofelldan vitnisburð hjá héraðsprófastinum séra
Erlendi Jónssyni: „item hefur proprietajáus látið byggja klukkna-
port með 4 stöplum, 4 bitum og 2 neðri bitum, syllum, áfellum, 2
sperrum og súðþaki mestan part, 2 aurstokkum og 3 miðsyllutrjám
til beggja hliða, framan fyrir því eru dyrastafir, grindahurð á járn-
um aftur krækt, þar upp af pillárar millum bita og 2 slár hvors vegar
millum stólpa og dyrustafa“. Klukkurnar, sem áður hengu inni í
kirkju, koma ekki í portið fyrr en næsta ár: „Anno 1782 . .. klukkna-
portið nýuppbyggt, og þangáð fluttar 2 klukkurnar á ramböldum.“