Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1901, Blaðsíða 124
124
mjög fjarri því að staðfesta skoðun þá, er vér drápum á
í upphafi ritgjörðar þessarar, að guð haíi í öndverðu gefið
þjóð sinni, Israel, gamla testamentið alt í einu, eins og
vér eigum það nú.
Þeirri skoðun hafa hinar vísindalegu rannsóknir gamla
testamentisins hrundið með öllu.
Gamla testamentið er alls ekki bók failin af himni
ofan, eða til orðin í heimi bókmentanna á annan hátt en
aðrar bækur. Það er samsafn af ritum frá ýmsum tím-
um eftir ýmsa höfunda, er setja oss fyrir sjónir líf, starf-
semi og hugsunarhátt einnar sérstakrar þjóðar á ýmsum
tímum, og eru sjálf framleiðsli hins andlega lífs og and-
legu starfsemi þessarar þjóðar. Gamla testamentið setur
oss fyrir sjónir hversu hin útvalda þjóð, ísrael, hefir lifað
starfað og hugsað á þeim tímum, sem hin einstöku rit
þess eru fram komin áj nákvæmlega á sama hátt og bók-
mentir annarra þjóða sýna oss þetta hið sama, hvað þær
snertir. I pessu tilliti er hér þvi eigi um neinn veruleg-
an mismun að ræða. Það, sem gerir rit þessi svo mik-
ilvæg fyrir oss, er því ekki það, að þau séu framkomin
í heimi bókmentanna á annan hátt en önnur rit, heldur
það vitni, sem þau bera um hinar háleitu trúar- og sið-
ferðishugmyndir, sem gjörvalt líf þessarar þjóðar, er þar
verður fyrir oss, er gagnsýrt af.
Því að þjóðin, sem fyrir oss verður i fitum þessum,
er alveg einstök í sinni röð. Frá ófullkominni byrjun
sjáum vér hana smátt og smátt hefja sig til hærri trúar-
legrar og siðferðilegrar fullkomnunar, aðallega fyrir starf-
semi einstakra andlegra stórmenna (spámannanua), sem
eugin þjóð um þær mundir átti þvílíka, manna, er gerast
leiðtogar þjóðarinnar bæði í tímanlegum og andlegum
efnum, hafa feiknarmikil áhrif á hana í stóru og smáu
og veita henni hlutdeild í andlegum auðæfum hjarta síns.
En um fram alt fræðumst vér af ritum þessum um það,