Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 34

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 34
154 upp hjá foreldrum sínum, og kom það brátt i ljós, að talsverður dugnaður mundi verða í honum. Þriggja ára gamall henti hann steini i auga á lítilli stúlku, svo hún misti sjónina á auganu; og fjögra ára gamall hengdi hann kött. Hann var ódæll, hrekkjóttur og slægvitur, og í öllum leikjum við jafnaldra sína varð hann einn öllu að ráða. Leið svo tíminn þangað til hann var kristnaður, og reyndist hann við lærdóminn skarpur og gáfaður. Hann var mjög gefinn fyrir að græða; seldi sauðfé og keypti, og mátti svo heita, að hver peningur tvöfaldaðist í höndum hans. Þegar hann var átján ára, fór hann frá foreldrum sínum, og vistaðist sem sauðamaður hjá ríkisbónda í sveitinni. Þar var hann i þrjú ár og undi vel hag sínum, að öðru leyti en því, að hann þóttist ekki græða nóg. Um það leyti byrjuðu fólksflutningar til Ameríku, og var mikið látið af landskostum þar. Hneigðist hugur allmargra til vesturferða, því þar áttu allslausir menn að geta orðið auðugir á skömmum tima. Sveinþór virtist, að hann mundi seint verða að manni í því landi, sem hann var fæddur í, og afréð að flytja vestur. Seldi hann þá hross sín og sauðfé og aðrar eigur, og flutti vestur ásamt nokkrum öðrum mönnum. Komu þeir til Kanada að áliðnu sumri og settust að í borginni Halifax. Þar dvaldi Sveinþór veturinn eftir, og átti örðugt uppdráttar, því lítið var um atvinnu, en hann skildi lítt tungu landsmanna. Um vorið fór hann burtu úr bænum og vann þá ýmist að bændavinnu, eða við járnbrautarlagning. Eitt sumar fór hann til Bandaríkjanna, og alt til borgar þeirra, er St. Louis heitir. A þessu ferðalagi var hann fjögur ár, og kom síðan aftur til Halifax. Þá var hann búinn að kasta föðurlandsgervinu, og orðinn »vurry, vurry Amurrican«, eins og Max O’Rell segir; talaði hérlenda tungu sem innfæddir menn og barst mikið á. Nokkrir landar hans áttu heima í borginni, og lifðu af daglaunavinnu. Það þótti Sveinþór lítilmannlegt, og áleit tíma til kominn, að hætta að vinna stritvinnu. Hann setti upp matvöruverzlan þar í borginni; hændust landar hans mjög til að verzla við hann, og leita ráða til hans í viðlögum, þvi margir þeirra kunnu ekki hérlent mál. Hann var málsnjall og ísmeyginn og hafði gott lag á að koma sér fram; smjaðraði fyrir mönnum, ef honum þótti svo við eiga, en beitti hörku og ásælni, þar sem hann þorði. Verzlun hans blómgaðist og stækkaði og að sama skapi óx álit hans, og mátti hann heita fyrirliði landa sinna. Kom nú svo, að innlendir menn tóku að veita honum eftirtekt, því þeir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.