Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 55

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 55
175 »Hm,« sagði Johnson aftur. Honum þótti nú minna varið í fréttina. »Ég kom á fund til þeirra,« sagði Grímur, »til að velja handa þeim »mottó« á fánann. Éær töluðu mikið um, hve mikil áhrif þær gætu haft á stjórnmál landsins, ef þær bara hefðu kosninga- rétt; — þér ætlið að sjá um, að þær fái að kjósa næst, er ekki svo?« »Ekki er það nú alveg víst, að þeim verði hleypt að kosn- ingaborðinu, en þær geta kosið á þann hátt, að ráða atkvæðum eiginmanna sinna. Karlmennirnir eru ekkert nema seðlar, sem konurnar kjósa á. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa þær með sér. En hvað er þetta,« sagði hann og stóð upp, því hópur af mönnum kom og ruddist inn í búðina. Hann gekk fram á móti þeim. Það var hópur af fylgismönnum hans, úr austurhluta bæj- arins, sem raunar stóðu á kjörskránni, en skeyttu ekki agnar ögn um kosningar nema að vera þeim megin, sem betur var veitt og fjárvon meiri. A undan þeim gekk stór og digur sláni, svo fullur, að hann gat valla staðið; hann tók Johnson í fang sér og faðmaði hann að sér, og sagði kjökrandi: »Eað vildi ég að guð gæfi, að þér næðuð almáttugur kosningu. Ég hef veðjað á yður tuttugu dollurum, og þér megið ekki falla. Nú ætlum við að drekka eitt glas með yður, því við erum nýkomnir frá að berja á helvítinu honum Moore — börðum þrjá menn hans niður, og —« »Drekka eitt glas með Mr. Johnson,« endurtók hópurinn, og út með þeim varð hann að fara, og hella í þá víni eins og þeir vildu, því annars mátti hann eiga þá vísa á móti sér við kosning- arnar. VE Fundur sá, er þeir Johnson og Grímur töluðu um, átti að byrja daginn eftir kl. tvö síðdegis. Helztu menn beggja flokkanna höfðu komið sér saman um, að þingmannaefnin skyldu halda þar ræður, og skýra kjósendum frá stefnu sinni í stjórnmálum. Löngu fyrir hádegi fóru kjósendur að tínast inn á veitingahúsin, sem voru í grend við fundarsalinn; sérstaklega voru það tvö veitinga- hús, sem var eins og öllum væri vísað á. En því var þannig varið, að þeir Johnson og Moore höfðu í tómi samið sinn við hvorn veitingamann, að þeir skyldu veita mönnum sínum vín og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.