Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 86

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 86
20 6 við enda sama símans í vatnsskálinni á hinni stöðinni og táknaði það bókstafinn a; á þennan hátt mátti síma heil orð og setningar, með því að sima hvern bókstafinn eftir annan. Þegar Sömmering kom fram með þessa hugmynd, gjörðu flestir gys að honum fyrir, þvi menn héldu að straumurinn mundi ekki geta komist nema máske nokkur hundruð faðma eftir símanum; svo mundi hann þverra smámsaman. Nokkru seinna bætti Sömmering símann svo, að ekki þurfti nema tvo sima í stað 24, og er sagt að sá ritsími mundi eigi kosta nema 270 kr. fyrir hverja milu vegar, en frétta- fleygir Chappes kostaði nærri 10 sinnum rneira. Þrátt fyrir það var uppgötvuninni enginn gaumur gefinn af öðrum en einstöku vísindamönnum, og Sömmering gat ekki fengið svo mikið fé, sem þurft hefði til þess að gjöra fullnægjandi tilraunir. Kringum 1820 uppgötvuðu menn segulverkanir rafmagns- straumsins, og hugkvæmdist þá þegar ýmsum mönnum, að auð- veldara mundi vera að nota þær, en að láta strauminn greina vatnið sundur í frumefni sín, eins og Sömmering hafði gjört. Tveir þýzkir vísindamenn, Gauss og Weber að nafni, urðu fyrstir til að framkvæma þá hugmynd; þeir lögðu síma frá athugastöð utan- borgar inn á vinnustofu sína, fram hjá segulnál, sem þar var, og svo til baka út á athugastöðina; þegar straum var hleypt í símann sem snöggvast úti á stöðinni, gjörði nálin eina sveiflu, væri straumn- um hleypt tvisvar hvað eftir annað, komu tvær sveiflur o. s. frv.; af þessum sveiflum gátu þeir svo ráðið merki þau, er þeim voru send. Hér var alt undir því komið, að geta hleypt straumnum af stað og slitið hann sem tíðast, til þess að skeytasendingin tæki ekki mjög langan tíma; til þess var notað mjög einfalt verkfæri, áþekt »lyklinum«, sem bráðum skal verða lýst. Eftir þetta rak hver uppgötvunin og endurbótin aðra, og yrði of langt mál að lýsa þeim öllum hér. Einna merkilegast var það, að þýzkur maður að nafni Steinheil tók eftir því árið 1838, að ekki þurfti nema einn sima milli stöðva, með því að jörðin getur komið t stað annars símans. Straumurinn þarf, eins og áður er drepið á, að fara frá galvanskerinu á einni stöð, fram hjá segul- nálinni á annari stöð og svo til baka til galvanskersins, og þá verða símarnir milli stöðvanna tveir. En sé nú lagður sírni frá koparplötu kersins fram hjá segulnálinni og svo endi hans grafinn í jörð niður, og í annan stað ofurlítill spotti frá zinkplötu kersins og niður í jörðina, þá hleypur straumurinn fyrst eftir simanum,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.